framfylgd ályktana Vestnorræna ráðsins árið 2021.
Virðulegur forseti. Ég kem hingað upp aðallega til þess að árétta athugasemdir mínar í andsvari áðan við hv. þm. Steinunni Þóru Árnadóttur um þetta ágæta fyrirkomulag sem er á umfjöllun um ályktanir Vestnorræna ráðsins hér á Alþingi, að ályktanir Vestnorræna ráðsins verði að þingsályktunartillögum sem teknar eru fyrir hér á Alþingi og ræddar og, að því er ég best veit, almennt samþykktar. Setjum það í samhengi við annað alþjóðastarf Alþingis, ýmsar sendinefndir sem við sendum á önnur alþjóðleg þingmannasamtök sem fá því miður allt of lítið vægi hér inni og vekja í raun ekki mikla eftirtekt, kannski einmitt vegna þess að ekki er farið af stað með sérstaka umræðu um þær ályktanir sem eins og t.d. í mínu tilfelli Evrópuráðsþingið kemur með til sinna aðildarríkja, stundum meira að segja ábendingar eða tilmæli sem það beinir beint til íslenska þjóðþingsins. Við höfum fengið athugasemdir t.d. frá nefnd og sérstökum sendifulltrúa Evrópuráðsins um fjölmiðlafrelsi og þær ábendingar sem komið hafa fram í því hafa ekki ratað hingað inn.
Þetta á svo sem við um fleiri atriði og mig langar að vitna í það sem ég skildi af orðum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur, mig langar líka að þakka henni fyrir að taka þetta upp í sinni ræðu, að við erum oft að vinna að viðamiklum ályktunum í þessu alþjóðastarfi en síðan er einhvern veginn eins og það verði lítið sem ekkert úr þeim þegar heim er komið. Upplifunin er kannski sú að þessi vinna hafi farið í súginn. Ég get t.d. nefnt persónulegt dæmi um skýrslu sem ég mælti fyrir í Evrópuráðsþinginu um baráttu gegn kynferðislegri áreitni í þjóðþingum. Þar eru mjög víðtæk tilmæli til aðildarríkjanna og til þjóðþinga aðildarríkjanna. Við skulum hafa það í huga að það er ekki verið að beina þessu endilega til ríkisstjórnarinnar heldur einmitt til þinganna sjálfra — þetta er nú einu sinni þing, Evrópuráðsþingið — og verið að beina að okkur til að mynda að setja upp sérstaka ferla til að geta tekið á kynferðislegri áreitni innan þjóðþinga, t.d. með möguleikanum á að geta komið með nafnlausa kvörtun yfir áreitni og líka t.d. tilmæli um ákveðna gagnaöflun sem er ekki að öllu leyti búin að fara fram. Mér hefði þótt mjög góður bragur á því að við hefðum tekið þetta upp hér og haft umræðu um það á vettvangi þingsins í ljósi þeirrar miklu vinnu sem Alþingi hefur farið í, eigum við að segja á þessum vettvangi, um þetta málefni.
En burt séð frá því finnst mér að það ætti að vera almenn regla, ekki bara gagnvart nefndinni sem ég sit í heldur öllum alþjóðanefndum þingsins, að þær ættu að taka meira pláss, hafa meira vægi í þinginu en að fá einungis einn dag þar sem skýrslur alþjóðanefnda — og núna reyndar er þessu skipt upp í tvo daga, eða þrjá jafnvel, sem er ágætt út af fyrir sig, en þetta eru bara ársskýrslur sem mér virðast alla jafna, það hefur verið a.m.k. þann tíma sem ég hef verið hér á þingi og tekið þátt í þessu starfi, einskorðast við þá þingmenn sem eru í þeim nefndum, og jafnvel stundum ekki einu sinni það heldur er rétt svo að þingmaður flytji skýrsluna og svo er sú umræða eiginlega bara búin. Það vantar einhvern veginn aðeins virkari vettvang til að ræða þetta, vettvang sem hvetur kannski til aukinnar þátttöku í umræðu og líka vettvang sem leiðir til einhverra formlegra ferla innan þingsins. Það væri t.d. ágætt ef utanríkismálanefnd eða mögulega stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tæki upp tilmæli sem koma frá skýrslum t.d. Evrópuráðsins eða skýrslum annarra alþjóðlegra þingmannasamtaka sem við eigum aðild að. En auðvitað væri líka frábært að sjá hvernig stórar og viðamiklar áætlanir sem snerta okkur beint, þá meina ég tilmæli eða ályktanir frá þessum þingum, væru líka teknar inn til umræðu, kannski eins og í formi skýrsluumræðu.
Þetta er eitthvað sem mér finnst fullt tilefni til að skoða og það gleður mig að heyra að það er einhvers konar samhljómur um þetta hér. Rétt eins og hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir kom svo réttilega inn á þá vantar meiri og dýpri umræðu um utanríkismál hér á þingi og ég tel að dýpri og viðameiri umræða um það alþjóðastarf sem fram fer á vegum þingsins væri til þess fallin að dýpka þá umræðu en líka vekja betur athygli á því starfi sem þingmenn sinna utan landsteinanna sem hefur oft áhrif utan landsteinanna og er kannski ekki nógu þekkt til þess að það sé nægilega ríkur skilningur á því hversu mikilvægt þetta starf getur verið oft og tíðum.