152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[15:45]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir hans framsögu. Mig langar að byrja á að nefna að við erum að ræða þrenns konar atriði í þessu frumvarpi, í fyrsta lagi niðurfellingu á virðisaukaskatti vegna breytinga á björgunarsveitabílum og síðan þessi tvö mál, annars vegar svokallaða hreinorkubíla, það á að fjölga þeim um 5.000, og svo endursölu á notuðum hreinorkubílum. Mig langar að styðja fyrsta atriðið að almannaheillasamtök fái slíkan afslátt. En ég er ekki á þessum tímapunkti tilbúinn til að styðja hin atriðin. Ég hef velt því fyrir mér hverjum þetta gagnist, að það sé verið að bæta í þetta. Mér finnst hæstv. ráðherra tala fram og til baka í málinu, annars vegar að tala um að gera þetta og eyða í það 5,5 milljörðum en á sama tíma að tala um að þessir bílar skili engu og það séu þá aðrir að borga það sem upp á vantar eða að ríkissjóður verði af tekjum sem hægt væri að nýta í annað. Þannig að mér finnst sérstakt á þessum tímapunkti að eyða 5,5 milljörðum í eldsneytisgjald sem á að vera til viðhalds vega, það er ekkert þar, þeir menga jafn mikið þessir bílar, keyrandi á nagladekkjum út og suður. Ég er frekar pirraðir yfir að það sé verið að blanda þessu saman. Af hverju var ekki hægt að skipta þessu í annars vegar það sem snýr að almannaheillasamtökum og svo hitt?

Að lokum eru vangaveltur um fjármálaáætlun. Það er verið á hlaupum að reyna að loka fjármálaáætluninni. Upplýsingar um endanlegar niðurstöður eru ekki komnar frá ráðuneytinu. Er þetta komið inn eða megum við eiga von á (Forseti hringir.) milljarða breytingum frá ráðuneytinu á síðustu metrunum?