152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[15:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar. Hann segir að það væri óráð að stoppa við 15.000 og talan sé 20.000 bílar. Ég næ ekki af hverju sú tala væri endilega heppilegri en 15.000 bílar. Getur hún ekki alveg eins verið 25.000? Eða eitthvað allt annað? Ég sé ekki að sú tala sé endilega sannleikstalan sem við eigum að miða allt við.

Það er talað um að jú, það þurfi að fara að hækka bifreiðagjöld en á hverjum bitnar sú hækkun? Það verður þá hækkun á bifreiðagjöldum hjá öllum, líka þeim sem ekki hafa haft efni á að kaupa sér rafmagnsbíl. Ef maður skoðar þar sem talað er um mat á jafnréttisáhrifum:

„Ekki hefur farið fram ítarleg greining á jafnréttisáhrifum frumvarpsins. Þó má leiða að því líkum að tillögur þess geti haft ólík áhrif á karla og konur hvað varðar breytingar á fjöldatakmörkun …“

Karlar kaupa sér dýra bíla. Konur eru skynsamari og kaupa sér ódýrari bíla. En hefur verið gerð greining á því hvaða hópar það eru sem fjárfesta í slíkum bílum? Eru það þeir sem minnst mega sín í samfélaginu eða eru það þeir sem hafa millitekjur og þaðan af hærri tekjur? Þannig að ég er ekki viss um að þetta sé til bóta ef við ætlum að horfa til jafnréttissjónarmiða í þessu sambandi.