virðisaukaskattur.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir ræðuna. Hún gerði að umtalsefni sínu það sem skiptir meira máli í stærra samhengi í þessari umræðu sem eru önnur áhrif sem loftslagsbreytingar hafa á samfélag okkar, skapa ójöfnuð og annað. Í þeim aðgerðum sem við grípum til til þess að sporna við loftslagsvánni — nú fögnum við sannarlega við hverju einasta skrefi, ég tek undir það. En það hefur sannarlega verið gagnrýnt áður við þessa tillögu og þessa leið, að hún tekur ekki á öðrum þáttum og öðrum afleiðingum. Það má meira að segja halda því fram að hún ýti undir ákveðinn ójöfnuð og þá velti ég t.d. fyrir mér: Nú þekki ég ekki neina manneskju á lágum launum sem hefur, þrátt fyrir þessa niðurgreiðslu, efni á því að kaupa sér nýjan rafmagnsbíl. Það kannski segir svolítið mikið, jafnvel þó að verið sé að taka verðið niður um eina og hálfa milljón. Það þýðir ekki að allir geti keypt sér rafmagnsbíl og kannski þýðir það ekki endilega að fólk sé að kaupa sér rafmagnsbíl sem hefði ekki getað gert það ella. Kannski er þetta fólk sem hefði hvort eð er getað gert það en notar þetta til þess að fá sér bíl númer tvö eða þrjú, sem er náttúrlega ekki það sem við erum að reyna að stuðla að. Það sem mig langaði að koma með inn í þessa umræðu hjá hv. þingmanni er akkúrat þetta: Þurfum við ekki að hugsa þetta þannig? Hver er markhópurinn? Hvað getum við gert til þess að tryggja að allir geti verið þátttakendur í því að vinna gegn loftslagsbreytingum? Við eigum náttúrlega í fyrsta lagi að vinna gegn ójöfnuði í þessum aðgerðum. Hvernig getum við tryggt að við séum alls ekki að vinna með ójöfnuði, að ýta undir ójöfnuð í þessum aðgerðum?