virðisaukaskattur.
Herra forseti. Auðvitað er ástæða til að skoða þetta, en ég á t.d. rafmagnsbíl, ég var ekki að bæta honum í bílasafnið heldur er tilgangurinn að geta keyrt um á rafmagnsbíl. Það sama á við um þau sem ég þekki og kannast við sem eru í sömu stöðu. Þú keyrir náttúrlega bara á einum bíl í einu og þá er betra að keyra á rafmagnsbíl en á bensín- eða dísilbíl. En líkt og ég fór yfir í ræðu minni þá eigum við svolítið langt í land með að átta okkur nákvæmlega á því hvað við þurfum að gera til að vera með hraðvirkari aðgerðir sem vinna gegn loftslagsvá af mannavöldum. Við erum með stærsta sótsporið í samgöngunum, svo í matvælunum og innfluttu vörunum og þarna er sannarlega verk að vinna. Við þurfum að gæta að því að vinna bæði hratt og vel gegn ógninni. Ógnin er nefnilega svo skelfileg. Hún er svo sýnileg og verður það ár frá ári og þó að við höfum aðeins gleymt að hugsa um loftslagsvána á meðan heimsfaraldurinn gekk yfir þá hélt hún samt áfram og hlýnun jarðar hélt áfram þó að kórónuveiran grasseraði. Þannig að þarna er þörf á svo róttækum aðgerðum. Það sem við erum að ræða hér er bara pínulítið skref. Við þurfum að horfa á þetta í samhengi og gæta að jöfnuði og gæta að því að ýta ekki undir ójöfnuð. En mér finnst ekkert athugavert við að skoða þessa hugmynd sem hv. þingmaður (Forseti hringir.) er hér með. En þá þarf að kortleggja stöðuna hjá fólki sem er að kaupa sér rafmagnsbíla.