virðisaukaskattur.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og þá sér í lagi þá áherslu sem hv. þingmaður lagði á jöfnuð og mikilvægi hans. Mig langaði að fara lengra en hv. samþingmaður minn hér á undan varðandi jöfnuðinn. Eins og bent hefur verið á gilda þessar niðurfellingar algerlega óháð þeirri stöðu sem fólk hefur, efnahagslegri stöðu. Við höfum séð að fjölskyldur eða þeir einstaklingar sem eru í lægri tekjuflokkum eru, ef svo má segja, enn þá fastir á gömlum bensínjálkum vegna þess hversu dýrir þessir bílar eru enn í dag.
Sem betur fer, eins og hv. þingmaður benti á, er verðið á þessum bílum að fara niður á við, rétt eins og drægnin er að fara upp á við. En mig langaði að heyra hvort hv. þingmaður hefði einhverjar hugmyndir um hvernig við gætum aðlagað þetta kerfi á þann máta að við tryggðum að þeir sem þurfa á slíkri niðurgreiðslu að halda fái að njóta hennar sem best en þeir sem eru að bæta Teslu við fjóra Discovery-jeppa myndu ekki (Forseti hringir.) nýta sér þetta á sama tíma.