virðisaukaskattur.
Virðulegi forseti. Ég fagna þessu frumvarpi og ég er ánægður með breiðu línurnar. Auðvitað getur verið að einhverju þurfi að breyta og ég hlakka bara til að fara betur yfir þetta í efnahags- og viðskiptanefnd. En í grunninn er ég ánægður með þá nálgun hæstv. fjármálaráðherra og ráðuneytis hans að reyna að beina skattastyrkjum frekar að algjörum hreinorkubílum heldur en tengiltvinnbílum. Ég er líka sammála þeirri hörðu gagnrýni sem kom frá ráðuneyti hæstv. ráðherra á framlengingu mjög ómarkviss skattafsláttar þegar kemur að vörugjaldi bílaleigufyrirtækja, sem tekur ekki bara til hreinorkubíla heldur líka bæði til tengiltvinnbíla og bensín- og dísilbíla. Illu heilli var sá skattafsláttur framlengdur við samþykkt fjárlaga í desember. Það er auðvitað alltaf bent á að stuðningur af þessu tagi renni að miklu leyti til efri millitekjuhópa. Það er alveg rétt en í mínum huga breytir það því ekki að þetta er bara eitt af mjög mörgum verkfærum sem við þurfum að beita í verkfærakistunni núna til að draga hratt úr losun næstu árin og stuðla að hraðari útfösun jarðefnaeldsneytis í vegasamgöngum og auðvitað öðrum samgöngum.
Ráðherra hefur hér í dag minnst svolítið á bílaleigur og mikilvægi þess að bílaleigufyrirtæki komi inn í þetta verkefni. Mig langar aðeins að grípa þann bolta. Alla vega síðast þegar ég vissi kaupa bílaleigur meira en 40% af öllum nýskráðum bílum á Íslandi, ég held að hlutfallið hafi farið upp í 50 eða 60% eitt árið. Þetta hlutfall er hvergi í heiminum svona hátt, sem er kannski vegna þess að Ísland er ferðaþjónustuland, það er strjálbýlt land, við erum með veikar almenningssamgöngur, við erum ekki með lestarkerfi og við erum með mjög veikar almenningssamgöngur.
Það er einmitt ágæt umfjöllun um mál sem snertir þetta á visir.is í dag, þ.e. hvers konar skilaboð það eru sem ferðamenn fá strax við komuna á Leifsstöð um almenningssamgöngur á Íslandi. Inni á flugvellinum eru engar merkingar um að það gangi strætisvagnar þangað. Það er ekki að finna eina einustu merkingu um það í Leifsstöð. Bílaleigubílar eru því augljósi kosturinn fyrir ferðamenn og sá samgöngumáti sem langflestir þeirra velja sér og þangað er þeim beint mjög markvisst strax við komuna á Keflavíkurflugvöll. Það hlýtur að skýra að einhverju leyti hvað hlutfall bílaleigubíla er hátt af öllum nýjum bílum á Íslandi. Þetta er auðvitað allt saman bara vandamál út af fyrir sig vegna þess að allir bílar, líka rafmagnsbílar, treysta á mjög kolefnisfreka innviði og hafa slæm umhverfisáhrif. Ég held að mjög mikilvægt sé að hafa það í huga í þessari umræðu að stóra verkefnið er auðvitað að sporna gegn fjölgun bíla almennt. Við þurfum að keyra minna, við þurfum í rauninni að fækka bílum á götunum. Þetta er eitthvað sem við skulum halda til haga þegar við erum að tala um svona skattaívilnanir.
Þetta með bílaleigubílana og þetta háa hlutfall er kannski sérstakt áhyggjuefni vegna þess að bara brotabrot af bílaflota bílaleigufyrirtækja gengur fyrir hreinni orku. Hlutfallið hefur reyndar aukist mjög hratt undanfarin tvö ár en það er enn þá mjög lágt. Það eru bara viðskiptalegar ástæður fyrir þessu. Það er auðvitað hagkvæmast að kaupa og leigja út litla og ódýra bensínbíla. Það er lítil eftirspurn meðal ferðamanna eftir bílum sem þarf að stinga reglulega í samband á flakkinu um landið. Staðan er sú að samkvæmt tölum frá 2020 eru bílaleigubílar 7,3% af bílaflota Íslands en þeir valda 10,6% af losun vegna samgangna á landsvísu. Þetta eru bílar sem fara svo á eftirmarkað. Það hvernig bílaleigurnar kaupa hefur því alveg gríðarleg áhrif á það hvernig bílaflotinn í heild er samsettur og langt fram í tímann. Það er kannski svolítið kjarni málsins.
Það er í rauninni tómt mál að tala um einhverja alvörurafbílavæðingu nema bílaleigufyrirtækin taki mjög virkan þátt í henni. Það er ekki eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Það gerist ekki nema hið opinbera stígi inn með mjög markvissum hætti. Það er hægt að gera með því að setja aukinn kraft í uppbyggingu hleðsluinnviða, t.d. bara við Keflavíkurflugvöll þar sem hefur verið skortur á svoleiðis innviðum og það hefur kannski verið ein af ástæðum þess hve bílaleigufyrirtækin kaupa lítið af hreinorkubílum. Það þarf að fjölga hleðsluinnviðum við gististaði víða um land, helstu ferðamannastaði, og auðvitað að beita einhvers konar skattaívilnunum en jafnvel líka kvöðum, tímasettum kvöðum, ákveða bara að innan ákveðins árafjölda þurfi hlutfall hreinorkubíla í heildarflota fyrirtækjanna að vera orðið miklu hærra en það er í dag. Það er alla vega verkefnið. Ef við ætlum að halda áfram að njóta ávaxta ferðaþjónustunnar en gera það á vistvænan hátt er þetta svolítið stóra verkefnið. Þetta er algjör lykill að því að hraða rafbílavæðingunni almennt vegna þess sem ég fór yfir áðan með eftirmarkaðinn og það hvernig bílaleigurnar hafa í rauninni gríðarleg áhrif á það hvernig bílaflotinn í heild er samsettur.
Uppbygging almenningssamgangna og breyttar ferðavenjur eru, eins og ég fór yfir áðan, forsenda alvöruárangurs í loftslagsmálum. Við verðum að gera það eftirsóknarvert, einfalt og þægilegt, bæði fyrir ferðamenn en líka fyrir Íslendinga, að ferðast um landið án þess að eiga eða leigja bíl. Við þurfum ekki bara að færa okkur öll yfir í rafmagnsbíla heldur að sporna gegn fjölgun bíla. Við þurfum að sporna gegn aukinni bílaumferð. Það kallar á þéttari byggð. Það breytir því ekki að rafbílavæðingin skiptir mjög miklu máli. Það þarf að verða alger viðsnúningur í samgöngum núna á örfáum árum til þess að við getum náð markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Ég held að það sé alveg viðbúið að einhverjar einstakar aðgerðir þar verði kannski meira í þágu efri millitekjuhópa en einhverjar aðrar en ég held að það eitt og sér sé ekki eitthvað sem við eigum að setja fyrir okkur, svo lengi sem við gerum þá eitthvað annað á móti sem gagnast þeim tekjulægri, eins og t.d. bara það sem ég fór yfir, að stórauka og byggja upp almenningssamgöngur og lækka gjöldin þar. Þar þarf hið opinbera líka að stíga inn með mjög markvissum hætti. Þetta er það sem ég vildi helst segja um bílaleigurnar. Ég er ánægður með að hæstv. ráðherra skyldi minnast á þetta að fyrra bragði og hvet hann til dáða hvað þetta varðar, bæði hann og auðvitað loftslagsráðherra.
Almennt vil ég nota síðustu mínúturnar til að benda á ákveðið misræmi í áætlanagerð ríkisstjórnarinnar hvað varðar samdrátt í losun frá samgöngum. Nú einsetur ríkisstjórnin sér, samkvæmt stjórnarsáttmála, að Ísland verði orðið óháð jarðefnaeldsneyti árið 2040 en samt virðast ekki vera nein áform uppi um að hætta nýskráningu fólksbíla sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti fyrr en árið 2030. Þá vaknar spurningin: Hvað á eiginlega að gera til að koma öllum þessum jarðefnaeldsneytisbílum sem verða keyptir á næstu árum úr umferð á tímabilinu 2030–2040 til að hægt sé að ná markmiðinu um algjöra útfösun jarðefnaeldsneytis 2040? Hvernig rímar þetta eiginlega saman? Hér grunar mann að það sé einhvern veginn of drastískt að nefna dagsetningu fyrr, að ákveða bara að hætta, þ.e. að banna nýskráningu bensín- og dísilbíla fyrr en árið 2030, að það sé betra að fresta þessu fram í tímann. En það skapar þá í rauninni hættuna á drastískari aðgerðum seinna meir, þ.e. ef við meinum eitthvað með því þegar við tölum um að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti. Þetta er bara spurning sem ég skil eftir hérna. Ég beindi henni reyndar líka til hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í skriflegri fyrirspurn 7. mars en hef engin svör fengið við henni. Þessari og sams konar spurningum verður ríkisstjórnin helst að svara bara með beinhörðum aðgerðum og stefnumarkandi ákvörðunum, konkret ákvörðunum, sem allra fyrst og þá líka með endurskoðaðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum. Það er ekki vanþörf á því miðað við þessi hertu markmið sem ríkisstjórnin setti sér með stjórnarsáttmálanum. Þá mun svo sannarlega ekki standa á okkur í Samfylkingunni að styðja það og hvetja stjórnvöld til dáða.