virðisaukaskattur.
Frú forseti. Mig langaði að koma örstutt upp og fjalla um þá grein í þessu frumvarpi sem við höfum kannski minnst talað um hér í dag. Við höfum verið mjög föst í umræðunni um rafmagnsbílana. Í 1. gr. frumvarpsins er verið að víkka út niðurfellingu eða endurgreiðslu virðisaukaskatts við það að breyta ökutækjum björgunarsveita. Ég tel þetta að sjálfsögðu mjög góða breytingu því að í dag er niðurfelling á ökutækjunum sjálfum. Sannleikurinn er sá að til þess að hægt sé að nýta ökutækin til björgunarstarfa, t.d. uppi á jöklum eða við erfiðar aðstæður, þarf að fara í mjög víðtækar breytingar. Þær kosta oft jafnvel hátt í það sama og ökutækið sjálft.
Í greinargerð frumvarpsins segir:
„Björgunarsveitir gegna óeigingjörnu og mikilvægu hlutverki hér á landi við að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum.“
Ég tel þetta því af hinu góða og ég held að við ættum að vinna saman, þing, fjármálaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti, að því að finna hvar hægt er að styðja við þetta góða starf á þennan veg. Það er hægt að hugsa sér ýmislegt sem mætti skoða. Það er nú þannig með þessi ökutæki að það þarf að nýta þau við erfiðar aðstæður og það þýðir að það þarf gera við mörg þeirra eftir útköll. Þá mætti huga að virðisaukaskatti af viðgerðum á björgunartækjum. Allt er þetta af hinu góða vegna þess að það er sífellt að verða erfiðara fyrir þessi félagasamtök að afla fjár til síns starfs. Við erum farin að verða umhverfisvænni og viljum kannski síður skjóta upp flugeldum og viljum minna af spilakössunum og allt þetta. Það hefur að sjálfsögðu áhrif og þarna er hægt að finna aðrar leiðir sem ríkið getur stutt. Þetta eru ekki stórar upphæðir en mjög mikilvægar í því að tryggja hið óeigingjarna starf sem þarna fer fram.