152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

virðisaukaskattur.

679. mál
[17:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, fjöldatakmarkanir á rafmagnsbílum. Ég er eiginlega sammála því að við þurfum að ná því að fá fleiri rafmagnsbíla og hafa ívilnun af skatti gagnvart rafmagnsbílum. En það sem mér finnst eiginlega sorglegast í þessu er að það vantar þessa tengiltvinnbíla inn í þetta. Ég segi það vegna minnar eigin reynslu að tengiltvinnbílar henta sumum betur og það hefur sannað sig að þeir duga ótrúlega vel á rafmagni innan bæja og borga. Í litlum þéttbýliskjörnum úti á landi henta þeir að mörgu leyti betur en rafmagnsbílar. Ég get bara sagt sem dæmi: Að eiga sinn tengiltvinnbíl og kaupa á hann bensín fyrir einum og hálfum mánuði fyrir 6.000 kr. og fylla hann svo aftur núna einum og hálfum mánuði síðar fyrir 7.000 kr. — þetta sýnir svart á hvítu hversu eldsneytisnotkun minnkar og mengun. Það er hægt að nota tengiltvinnbíla á rafmagni allt upp í 80–90% af því sem fólk er að keyra innan borga og bæja. Það er eiginlega sorglegt að við skulum eingöngu vera með rafmagnsbílana inni því að það hefði líka mátt hafa tengiltvinnbíla þar. Ég er sammála því að við eigum að reyna að taka þessi skipti upp. Það er auðvitað alveg gjörólík tilfinning, og maður áttar sig ekki á því fyrr en maður prófar það, að aka um á bensíni eða dísil eða rafmagni. Þarna er gífurlegur munur og ég segi að á allan hátt er það rafmagninu í hag. Þess vegna ákvað ég að koma hér upp. Ég vona heitt og innilega að einhvern veginn verði tekið tillit til þess fljótlega að reyna að auka það að hægt sé að velja, að fólk hafi val og fái þá líka einhverjar ívilnanir vegna kaupa á tengiltvinnbílum. Ég held að það myndi flýta fyrir þeim skiptum sem við erum að reyna að ná, þ.e. að minnka brennslu á jarðefnaeldsneyti fyrir rafmagnið. Það segir sig sjálft að það er okkur hér á Íslandi í hag og við eigum og getum komið þessum skiptum á fljótt og vel. Við ættum að reyna að stuðla að því.

Þetta er hið besta mál og ég vona heitt og innilega að tekið verði tillit til þess í haust að reyna að sjá til þess að við munum einnig auka möguleika á að gefa afslátt af tengiltvinnbílum.