aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir framsögu í þessu mikilvæga máli. Mig langar að nota tækifærið hér til að spyrja hv. formann velferðarnefndar aðeins á almennari nótum líka um málefni er varða notendastýrða persónulega aðstoð. Nú er það svo að í lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er gert ráð fyrir að á þessu ári, árið 2022, sé veitt fjármagn úr ríkissjóði gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga til allt að 172 NPA-samninga. Þetta „allt að“ í lögunum snýst auðvitað um það hvort búið sé að sækja um fleiri eða færri samninga. Um leið liggur fyrir fjármálaáætlun þar sem einungis er gert ráð fyrir fjármögnun þeirra samninga sem þegar eru í gildi, sem eru miklu færri en 172, ég held að þeir séu eitthvað í kringum 90, ef ég man rétt. Nú hef ég fengið þau svör frá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann geti ekki gefið neitt út um það hvort fleiri samningar en það verði fjármagnaðir á gildistíma þessarar fjármálaáætlunar. Mig langar að spyrja hv. formann velferðarnefndar hvort hún telji þetta góða velferðarpólitík, hvort henni finnist þetta fullnægjandi og góður bragur á þessu gagnvart fólki sem sárvantar þessa mikilvægu þjónustu, þjónustu sem er algjört lykilatriði til að tryggja frelsi og sjálfstæði fatlaðs fólks.