152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[17:14]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir andsvarið. Eins og fram kemur í nefndaráliti með þessu frumvarpi þá hvetur velferðarnefnd stjórnvöld til að leita leiða til að fjölga virkum samningum. Hins vegar verður sú sem hér stendur að játa það að hún hefur ekki kafað ofan í þessi málefni í stóra samhenginu þó að við í velferðarnefnd höfum nýtt tímann mjög vel til að fræðast um ólíka þætti sem heyra undir velferðarnefnd frá því að nefndin tók til starfa í vetur. Mér finnst mjög mikilvægt að við höldum áfram að bæta þessa þjónustu og fjölga samningum en auðvitað kemur margt til þar. Það þarf fjármagn og það þarf að tryggja að starfsfólk sé tilbúið í verkefnin og það þarf líka að byggja upp þekkingu innan sveitarfélaganna um allt land við að koma þjónustunni á og skipuleggja hana. Margt hefur áunnist en við erum enn ekki lengra komin en raun ber vitni. En það hafa verið stigin risastór skref frá því að þjónustunni var fyrst komið á hér á landi.