152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[17:16]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir svarið. Þetta er auðvitað svolítið skringileg staða sem er komin upp. Við erum með lög sem kveða á um að tiltekinn fjöldi samninga eigi að vera fjármagnaður af ríkinu á þessu ári. Þeim lögum er ekki fylgt, þ.e. bráðabirgðaákvæðinu í lögum um þessa þjónustu. Við erum með hæstv. félagsmálaráðherra sem vill ekkert segja til um það hvort til standi á næstu árum, bara á þessu kjörtímabili, að fjölga samningum og fjármagna með fullnægjandi hætti. Svo erum við með fjármálaáætlun þar sem birtast í rauninni engin fyrirheit um slíkt. En um leið er meiri hluti velferðarnefndar að skora á ríkisstjórnina. Ég veit ekki, er velferðarnefnd öll komin í einhvers konar stjórnarandstöðu gagnvart ríkisstjórninni þegar kemur að NPA-samningum? Hvernig sér hv. formaður nefndarinnar fyrir sér að þetta þróist allt saman næstu árin? Þá vil ég líka benda á nýuppkveðinn dóm í Héraðsdómi Reykjavíkur um að sveitarfélög geti í raun ekki með lögmætum hætti skýlt sér á bak við það að ekki sé komið mótframlag frá ríkinu þegar gerðir eru þjónustusamningar og þegar dráttur verður á þeim. Hvernig getur velviljað fólk hér á Alþingi beitt sér til að tryggja að lögum sé fylgt og fólk fái þá þjónustu sem það á rétt á þegar við erum með félagsmálaráðherra úr röðum Vinstri grænna og fjármálaráðherra úr röðum Sjálfstæðisflokksins sem eru greinilega á einhverri allt annarri skoðun en hv. formaður velferðarnefndar og þingkona Framsóknarflokksins?