152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[17:18]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Páli Jóhannssyni seinna andsvar. Ég hef raunar hvergi heyrt, ekki í máli nokkurs manns sem að þessum verkefnum kemur, annað en að vilji sé til að halda áfram að fjölga þessum samningum. Hins vegar er það nú þannig að fjármögnun er ákvörðuð í fjárlögum og þar þarf að forgangsraða. Vissulega liggja þar fyrir samandregnar upplýsingar um þörf fyrir fjármagn til mismunandi verkefna og það geta á hverjum tíma verið önnur verkefni innan sama málaflokks sem togast á um sama fjármagnið. Það er einfaldlega sú áskorun sem fjárveitingavaldið stendur frammi fyrir og þeir hv. þingmenn sem sitja í fjárlaganefnd hverju sinni og þurfa að vega og meta í sinni vinnu.