152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:09]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég get tekið undir hvert einasta orð sem hér var látið falla. Mér finnst svolítið athyglisvert hvað stjórnarliðar eru stífir á aðhaldskröfum og útgjaldarömmum þegar kemur að velferðarmálum, en svo þegar kemur að skattastyrkjum hingað og þangað, hvort sem það er til fyrirtækja, til kvikmyndagerðar, eins og við sjáum í deilum fyrir opnum tjöldum milli fjármálaráðherra og menningarráðherra, þá kemur einhvern veginn allt annað hljóð í strokkinn.

Hér ræðum við um NPA-samninga og mikilvægar lagabreytingar sem snúa að aðstæðum starfsfólks. En mig langar að tala aðeins um þetta allt saman á almennari nótum. Svíar lögfestu notendastýrða persónulega aðstoð sem rétt mikið fatlaðs fólks árið 1994. Í Danmörku var farið af stað með svona tilraunaverkefni upp úr 1970. Í Noregi var byrjað með tilraunir á notendastýrðri persónulegri aðstoð árið 1990 og svo voru sett lög um þetta þjónustuúrræði um aldamótin. En hér á Íslandi voru ekki einu sinni gerðir neinir tilraunasamningar fyrr en árið 2012. Lögin um NPA-samninga, þessa grundvallarþjónustu sem tryggir fötluðu fólki frelsi og sjálfstæði, voru ekki sett fyrr en 2018. Hvernig gengur þetta? Jú, þetta er allt að koma, þetta er bara gert býsna vel í langflestum tilvikum, skilst manni, en þetta gengur samt allt of hægt. Árið 2012 voru gerðir 22 NPA-samningar. Árið 2014 voru þeir orðnir 51. Í dag skilst mér að samningarnir séu eitthvað í kringum 90.

Í skýrslu starfshóps um heildarendurskoðun á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir kemur fram að í fyrra voru 44 einstaklingar að bíða eftir NPA-þjónustu í sex sveitarfélögum, langflestir auðvitað í Reykjavík þar sem þjónustuþörfin er mest, íbúafjöldinn er mestur. Sveitarfélögin voru spurð um ástæður þess að umsóknin væri á bið hjá þeim, hversu mörgum umsóknum hefði verið hafnað. Þau svöruðu öll því til að umsóknin væri á bið vegna skorts á fjárheimildum og það vantaði samþykki um mótframlag frá ríkinu. Þarna stendur sem sagt hnífurinn í kúnni fyrst og fremst. Það er nefnilega mikilvægt að hafa það í huga að framkvæmd þessara laga hefur verið með þeim hætti að umsóknir eru samþykktar með fyrirvara um staðfestingu á 25% mótframlagi frá ríkinu og þjónustan fer alla jafna ekki af stað fyrr en það liggur fyrir staðfesting á þessu. Það kemur einmitt fram í skýrslu þessa starfshóps sem ég nefndi að það hafa mikil vandkvæði verið bundin skorti á upplýsingum um mótframlag ríkisins vegna nýrra NPA-samninga á hverju ári frá því að lögin tóku gildi árið 2018. Það setur fólk auðvitað í afleita stöðu.

Í þessu samhengi held ég að það sé full ástæða til að víkja nokkrum orðum að mjög mikilvægum dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir örfáum vikum, þann 24. mars, í máli manns sem hafði fengið samþykkta umsókn um NPA-samninga hjá sveitarfélaginu. Hann beið og beið, í meira en tvö ár, eftir að þjónustan yrði veitt vegna fyrirvarans um mótframlag frá ríkinu. Á meðan var hann látinn bíða, látinn dvelja á hjúkrunarheimilum gegn vilja sínum. Hann fór í mál við sveitarfélagið, krafðist viðurkenningar á réttinum til NPA-þjónustu og niðurstaðan var mjög afdráttarlaus. Þetta er bara mjög athyglisverður dómur og ég hvet þingheim til að fara vel yfir hann.

Í niðurstöðukaflanum segir að þau réttindi sem umsókn stefnanda lýtur að varði umtalsverða persónulega og fjárhagslega hagsmuni hans sem auk þess eru hluti af mannréttindum sem löggjafinn hefur lögfest og skuldbundið sig til að lúta samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Héraðsdómur vísaði til 76. gr. stjórnarskrárinnar. Þar er mælt fyrir um að öllum sem þess þurfa sé tryggður réttur til aðstoðar vegna sjúkleika, örorku og sambærilegra aðstæðna. Bent er á í dóminum að löggjafinn hafi með lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sett reglur í samræmi við þessar skyldur sem mælt er fyrir um í stjórnarskránni. Samkvæmt 11. gr. laganna á einstaklingur rétt á þessari þjónustu ef hann hefur miklar og viðvarandi stuðnings- og þjónustuþarfir. Í bráðabirgðaákvæðinu í lögunum, sem við ræddum hér aðeins áðan í andsvörum, er bara gert ráð fyrir því að ríkissjóður veiti framlag í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga vegna tiltekins fjölda samninga á tímabilinu 2018–2022, sem aukist þá í skrefum. Það áttu að vera komnir allt að 172 fjármagnaðir samningar núna árið 2022, en eins og komið hefur fram þá eru gildandi samningar ekki nema — ja, þeir eru alla vega færri en 100, eitthvað á bilinu 80–90.

Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er aðeins gert ráð fyrir því að þeir samningar sem nú þegar eru í gildi verði fjármagnaður. Það er ekki gert ráð fyrir neinni fjölgun þar. Við 1. umr. um þetta mál ræddi ég þetta við hæstv. félagsmálaráðherra og reyndi að fá skýr svör frá honum um hvort samningum yrði ekki örugglega fjölgað mjög rækilega á þessu kjörtímabili, þetta er svo risastórt frelsis- og sjálfstæðismál og velferðarmál, og hvort ekki mætti vænta þess að þeir yrðu einhvern tímann á gildistíma þessarar fjármálaáætlunar orðnir jafn margir og þeir áttu að vera samkvæmt lögunum núna á þessu ári, 172.

Hæstv. ráðherra treystir sér ekki til að gefa nein skýr svör um þetta eða staðfesta eitt eða neitt þannig að þetta er í rauninni staðan að við erum með fjármálaáætlun sem gerir bara ráð fyrir fjármögnun samninganna sem eru nú þegar í gildi þótt það séu mjög skýr bráðabirgðaákvæði í lögunum um þessa þjónustu sem kveða á um að ríkið eigi nú þegar að vera búið að fjármagna 172 samninga.

Ef við grípum núna aftur niður í dóm Héraðsdóms Reykjavíkur segir þar, og þetta er mjög afdráttarlaust:

„Lög nr. 38/2018 leggja ákveðnar skyldur á ríkissjóð til þess að fjármagna þessa þjónustu miðað við ákveðinn fjölda samninga á innleiðingartímabilinu.“

Þarna er sem sagt verið að vísa til bráðabirgðaákvæðis. Þetta eru skyldur sem eru lagðar á ríkissjóð og við sem förum með fjárveitingavaldið verðum auðvitað að fylgja þessum skyldum eftir í fjárlögum.

Héraðsdómur heldur áfram:

„Gagnvart stefnanda“ — sem sagt gagnvart manninum sem stefndi sveitarfélaginu — „má það einu gilda hvernig skiptingu kostnaðar sé háttað á milli sveitarfélaga og ríkisins og með hvaða hætti uppgjör í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga eigi sér stað. Hvorki í ákvæði 11. gr. laga nr. 38/2018 né í öðrum ákvæðum laganna er að finna heimild til þess að binda rétt fatlaðs fólks til notendastýrðrar persónulegrar þjónustu því skilyrði að hún komi því aðeins til framkvæmda að fjárframlög berist frá ríkissjóði. Eins og áður hefur verið rakið og kemur fram í athugasemdum í frumvarpi til laganna er þessi þjónusta hugsuð í þeim tilgangi að tryggja mannréttindi þeirra fötluðu einstaklinga sem þarfnast mestrar þjónustu. Þegar svo háttar til verður að gera strangar kröfur til þess að heimild til að binda stjórnvaldsákvörðun fyrrgreindum skilyrðum styðjist við skýra og ótvíræða lagaheimild í ljósi lagaáskilnaðarreglna stjórnarskrárinnar og lögmætisreglunnar. Því er ekki fyrir að fara og verður því fallist á að sú ákvörðun stefnda að binda afgreiðslu umsóknarinnar […] því skilyrði að hlutdeild ríkisins í fjármögnun lægi fyrir eigi sér ekki lagastoð.“

Þetta eru nú bara meiri háttar tíðindi og héraðsdómur gekk meira að segja svo langt að staðfesta rétt mannsins til skaðabóta út af þessu vegna beins fjártjóns sem hann var talinn hafa orðið fyrir vegna saknæmrar og ólögmætrar háttsemi sveitarfélagsins. Þetta hefur bara verið tekið fyrir á neðsta dómstiginu og það verður mjög fróðlegt að fylgjast með hvernig þetta þróast. En ef dómurinn verður staðfestur og ef þetta verður hin endanlega niðurstaða þá hlýtur þetta að þýða að sú vanfjármögnun NPA-samninga, sem ég er núna að nota tækifærið til að tala um í umræðu um þessar lagabreytingar er varðar þessa þjónustu — hún hefur nú þegar bitnað mjög illa á fólkinu sem þarf á þessari þjónustu að halda — hlýtur nú að leggjast af þeim mun meiri þunga á sveitarfélögin og bætast þá við þann gríðarlega rekstrarhalla sem er nú þegar á þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Hv. þm. Kristrún Frostadóttir fór mjög vel yfir þetta hérna áðan. Þetta bætist þá bara ofan á þann stabba sem ríkið er alltaf að velta yfir á sveitarfélögin.

Með hliðsjón af þessu öllu hlýtur maður að taka undir það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar, en þar segir:

„Meiri hlutinn beinir því til ráðuneytisins að það leiti leiða til að fjölga samningum svo þeir einstaklingar sem þurfa á að halda fái þjónustu við hæfi.“

Þetta eru náttúrlega orðin tóm ef því er ekki líka beint til ríkisstjórnarinnar, stjórnarmeirihlutans, oddvita þessara flokka sem ráða för, að skipta um kúrs í ríkisfjármálum, forgangsraða í þágu velferðar því að þetta er spurning um fjármagn. Þetta eru ekki bara einhverjar tæknilegar spurningar um útfærslu þess. Þetta eru fyrst og fremst spurningar um fjármagn og forgangsröðun í ríkisfjármálum, rekstri samfélags. Þetta snýst um það hvort við ætlum að fjársvelta almannaþjónustuna, fjársvelta þessa lífsnauðsynlegu þjónustu sem gefur fólki frelsi og sjálfstæði og breytir öllu fyrir það, hvort við ætlum að fjársvelta almannaþjónustuna eða reka hérna alvöruvelferðarpólitík sem við getum verið stolt af.