152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

590. mál
[18:23]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Mig langar aðeins að blanda mér í umræðuna um þessa lagabreytingu sem hér er til umræðu, breytingu á lögum um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustað, sem er sérstaklega beint að þeim aðilum sem sinna fólki með stuðningsþarfir eða einstaklingum sem eru með svokallaða NPA-samninga. Mig langar að byrja á, eins og margir aðrir hafa gert, að fjalla á almennum nótum um þetta viðfangsefni sem við höfum verið að takast á um. Þetta hefur verið bitbein ríkis og sveitarfélaga, þetta viðfangsefni sem hefur verið kallað NPA-samningar. Við þekkjum það að málefni fatlaðra voru flutt til sveitarfélaganna árið 2011 og með þeim fylgdi fjármagn í formi heimildar til að hækka útsvar og það átti síðan að duga til að reka þennan málaflokk á þann hátt sem talið var þurfa. En síðan hefur eitt og annað gerst sem hefur orsakað það að sveitarfélög telja að það vanti upp á fjármagn til þess að geta rekið þennan málaflokk. Hér hefur verið nefnt að uppsafnaður halli sveitarfélaganna á síðustu þremur árum sé 17 milljarðar, þar af 9 milljarðar á síðasta ári. Samkvæmt þeim upplýsingum hallar verulega á sveitarfélögin hvað þennan málaflokk varðar og hann er samkvæmt þeirra upplýsingum vanfjármagnaður. Hvað er það sem hefur gert það að verkum að við upplifum að sveitarfélögin eru að kvarta yfir því að ná ekki endum saman hvað þetta varðar? Það bitnar auðvitað á annarri þjónustu ef það þarf að ráðstafa kannski milljörðum eins og í Reykjavík í þennan málaflokk sem ekki hefur verið fjármagnaður. Það sem gerist í framhaldi af yfirtöku sveitarfélaganna á þessum málaflokki er að lögum er breytt og það koma ný lög 2018, lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Þar er alveg tiltekið hver skylda sveitarfélaganna er.

Með leyfi forseta, langaði mig aðeins að fá að lesa upp úr þessum lögum og byrja fyrst á því sem segir um markmið og skilgreiningar:

„Markmið laga þessara er að fatlað fólk eigi kost á bestu þjónustu sem unnt er að veita á hverjum tíma til að koma til móts við sértækar stuðningsþarfir þess. Þjónustan skal miða að því að fatlað fólk fái nauðsynlegan stuðning til þess að það geti notið fullra mannréttinda til jafns við aðra og skapa því skilyrði til sjálfstæðs lífs á eigin forsendum. Við framkvæmd þjónustu við fatlað fólk skal virðing borin fyrir mannlegri reisn þess, sjálfræði og sjálfstæði.

Þjónusta samkvæmt lögum þessum skal miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður viðkomandi, óskir og önnur atriði sem skipta máli, svo sem kyn, kynferði, aldur, þjóðernisuppruna, trúarbrögð o.fl.

Við framkvæmd laga þessara skal framfylgt þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvöld hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá skulu stjórnvöld tryggja að fatlað fólk, þ.m.t. hagsmunasamtök þess, hafi áhrif á stefnumörkun og ákvarðanir er varða málefni þess. Skal ákvarðanataka byggjast á viðeigandi aðlögun þar sem aðgerða er þörf svo að fatlað fólk fái notið réttinda sinna. Þegar fötluð börn og fjölskyldur þeirra eiga í hlut skal einnig framfylgja barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna lögum samkvæmt.“

Nú háttar þannig til að ekki er búið að innleiða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hjá velflestum sveitarfélögum á Íslandi og ég veit að nokkur sveitarfélög, þar með talið Reykjanesbær, eru í svokölluðu innleiðingarferli. Síðan segir þarna í 1. gr. að haft skuli samráð við hagsmunasamtök þeirra sem gæta hagsmuna þessara einstaklinga. Mig langar í því sambandi að nefna NPA-miðstöðina sem eru nú hagsmunasamtök þeirra sem eru fatlaðir og njóta þessarar þjónustu. Í umsögn þeirra er m.a. tekið fram að við þessa frumvarpsgerð hafi ekkert samráð verið haft við þau. Mér þykir það vera sérstakt þegar það er tiltekið í lögum að samráð skuli haft við hagsmunasamtök. Síðan segir áfram í þessum lögum, með leyfi forseta, í 5. gr.:

„Sveitarfélög bera ábyrgð á skipulagi og framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, þ.m.t. gæðum þjónustunnar, hvort sem hún er veitt af hálfu starfsmanna sveitarfélags eða af einkaaðilum samkvæmt samningi þar um, sbr. 7. gr., sem og kostnaði vegna hennar samkvæmt lögum þessum nema annað sé tekið fram eða leiði af öðrum lögum. Enn fremur skulu sveitarfélögin hafa innra eftirlit með framkvæmd þjónustunnar, þar á meðal með framkvæmd samninga sem sveitarfélögin gera við þjónustu- eða rekstraraðila um þjónustuna, sbr. 7. gr.

Um samvinnu sveitarfélaga vegna verkefna samkvæmt lögum þessum fer eftir ákvæðum sveitarstjórnarlaga og lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Í stað staðfestingar ráðuneytis sveitarstjórnarmála á samningi skal fá staðfestingu ráðuneytis sem fer með málefni fatlaðs fólks, sem skal kynnt hinu fyrrnefnda.“

Skylda sveitarfélaga er samkvæmt 5. gr., í mínum huga, alveg ótvíræð. Þeim ber að veita slíka samninga. En síðan segir í þessum lögum í ákvæði til bráðabirgða:

„Til þess að auka val fatlaðs fólks um þjónustu og fyrirkomulag stuðnings skulu sveitarfélög vinna að innleiðingu notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar í samræmi við 11. gr. á tímabilinu 2018–2022. Á innleiðingartímabilinu veitir ríkissjóður framlag til eftirfarandi fjölda samninga um notendastýrða persónulega aðstoð sem skal ráðstafað í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga sem tiltekinni hlutdeild af fjárhæð samninga, á grundvelli umsókna frá sveitarfélögum.“

Síðan kemur upptalning á því hversu mörg framlög sveitarfélög leggja til eða hversu mikla fjármuni á þessu aðlögunartímabili frá 2018–2022. Ég var ekki búinn að leggja þetta saman en mér sýnist þetta geta verið einir 700 samningar á þessu aðlögunartímabili, þar af eru 172 samningar á árinu 2022, en samkvæmt þeim upplýsingum sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson lagði hér á borðið áðan eru samningarnir ekki nema 80 eða 90. Miðað við það er því ekki verið að standa við þær skuldbindingar sem fólust í þessu ákvæði til bráðabirgða um framlag ríkisins til gerðar þessara samninga eins og samþykkt var í lögum frá 2018. Það er enn þá verið að rífast um þetta. En ég vil bara vekja athygli á því að þetta ákvæði er til bráðabirgða. Hvað gerist eftir árið 2022? Í ákvæðinu er ekki talað um hversu hátt hlutfall ríkið leggur í þetta heldur bara tiltekna upphæð. Það hefur verið þannig að sveitarfélögin hafa verið að borga 75% og ríkið 25%. Hvað gerist svo eftir 2022? Hvernig verður þetta þá? Þá eiga sveitarfélögin alfarið að greiða þessa samninga. Þá spyr maður, í ljósi þess hversu kostnaðarsamir þeir geta verið fyrir sveitarfélögin: Á að leggja sveitarfélögunum til einhverja fjármuni til að hægt sé að halda áfram að gera slíka samninga?

Það hefur komið í ljós að þessir samningar eru e.t.v. það besta sem gerst hefur í málefnum fatlaðs fólks á Íslandi. Staðan er bara þannig að þessi lög eru, held ég, það besta sem gert hefur verið til stuðnings fötluðu fólki á Íslandi. Það sem er í grunninn það fallega við þessa samninga er að þarna erum við að vinna að sjálfstæði og sjálfræði þessara einstaklinga, gera þeim kleift að njóta þess sem við hin getum notið; eðlilegs lífs, að geta farið í bíó og farið út að borða eða skroppið til útlanda eða gert það sem fólk lystir, horft á Netflix á kvöldin eða bara gert hvað eina sem það lystir, alveg eins og við hin. Það er tilgangur þessara laga að auka sjálfstæði þessara einstaklinga og það finnst mér vera það fallega við þetta. En nóg um það.

Við erum núna að ræða stöðu þeirra sem taka að sér að sinna þeim einstaklingum sem eru með NPA-samninga, starfsmennina. Við erum að tala um lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, vinnutíma starfsmanna sem veita notendastýrða persónulega aðstoð. Þarna er verið að setja fram tiltekin atriði sem eru þess eðlis að verið er að veita undanþágur frá vinnutíma sem hefur verið lögfestur, sem er m.a. 11 tíma hvíld á sólarhring. Þannig hefur það verið í kjarasamningum núna undangengin ár og það er talið lögbrot sé farið niður fyrir átta tíma í hvíld nema sérstakar aðstæður geri það að verkum að fólk þurfi að vera á vinnustað, t.d. ef það verður eldsvoði eða eitthvað slíkt. Þarna er verið að lögfesta annars konar fyrirkomulag vegna þeirra einstaklinga sem þurfa að nýta sér NPA-samninga. Ég held að við getum öll verið sammála því að það sé rétt að veita slíkar undantekningar og þessi breyting fjallar um að það megi í vissum tilfellum heimila að vinnutími geti varað samfellt í 48 klukkustundir, þó með ákveðnum undantekningum sem ég ætla ekki að eyða tíma í að fara yfir hér.

Samkvæmt umsögnum eru flestir sáttir við þetta. En mig langar kannski bara að grípa ofan í umsögn þess aðila sem ég tel að sé hagsmunaaðili fyrir þennan hóp, sem er NPA-miðstöðin sem hefur verið að vitna í sérkjarasamninga sem ég hef nú ekki séð. Ég fann sérkjarasamninga milli Eflingar og síðan þessarar NPA-miðstöðvar sem ég gat ekki séð að fælu í sér undantekningar frá 11 tíma hvíldinni. En nóg um það. Það er verið að tala um eitthvað sem heitir hvíldarvaktir. Það byggir á því að þú getur unnið í sólarhring en hafir aðstöðu til að hvíla þig á meðan viðkomandi einstaklingur sefur. Vaktin geti staðið í sólarhring en viðkomandi hefur möguleika til að hvílast einhvern hluta af vaktinni. Þetta getur verið ágætlega ásættanlegt. En þetta þýðir, eins og hefur verið nefnt hér í pontu, að viðkomandi fyllir vinnuskyldu sína yfir mánuðinn á sex vöktum. Venjulegur einstaklingur sem vinnur rútínuvinnu frá 9–5 skilar 21,67 dögum á mánuði að meðaltali þannig að þessi einstaklingur sem fer í þetta svokallaða hvíldarvaktafyrirkomulag skilar í raun og veru sinni vinnuskyldu á sex sólarhringum. Ég tala nú ekki um ef þetta verða 48 tímar. Ef það gerist það oft þá er hann í raun og veru búinn að skila sínum vinnutíma með þremur slíkum vöktum. Þetta er eitthvað sem þarf að vanda vel því að þetta er ekki bara spurning um að festa í sessi eitthvert fyrirkomulag sem skyldar vinnandi fólk til að vinna svona langar vaktir heldur getur það bara orkað tvímælis, það getur gert það að verkum að fólk verður þreytt í starfi sínu og sinnir því ekki eins vel og það getur orsakað árekstra milli einstaklinga og líka ef fólk er komið á þann stað að það nær kannski ekki að sofa á þessum hvíldartímabilum. Þetta er auðvitað vandmeðfarið. Ég á sjálfur svolítið erfitt með það, þar sem ég kem úr þeim geira sem hefur haft með kjarasamninga að gera, að gera miklar undanþágur frá lögbundnum réttindum, samningsbundnum rétti sem hefur verið unnið að í áratugi. En ég hef vissulega skilning á aðstæðum þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda.

Síðan finnst mér líka spurning um það hverjir gera slíka samninga. Við þekkjum hvernig þetta gerist á markaði. Það er vinnuveitandi og launþegi í gegnum sín félög, annaðhvort samtök fyrirtækja eða samtök launþega, sem gera slíka samninga. En þetta er annars eðlis. Einhvern veginn finnst mér það þurfa að vera með þeim hætti að allir slíkir hlutir séu skrifaðir inn í kjarasamninga. Það liggi fyrir í kjarasamningum hvers konar vaktir séu heimilar og hvað sé borgað fyrir þær. Ég myndi leggja til að NPA-miðstöðin, í samráði við stéttarfélögin, myndi setjast yfir þetta og reyna að komast að einhverri niðurstöðu. NPA-miðstöðin bendir á að með þessu fyrirkomulagi sem þarna er verið að tala um og undanþágunum, þessu 48 klukkustunda fyrirkomulagi, sé í raun og veru verið að þrengja þennan rétt sem hvíldarvaktirnar geta boðið upp á. Og eins og NPA-miðstöðin tiltekur þá geta þessar hvíldarvaktir verið samliggjandi, kannski vegna einhverra aðstæðna, ferðalags eða einhvers slíks. En ég er ekki alveg viss um það að við eigum að niðurnjörva þetta svona. Ég held að við þurfum alltaf frelsi. Við þurfum að leyfa þeim hagsmunaaðilum sem eru sitt hvorum megin við borðið að fá að finna út úr þessu. Mér finnst bara eðlilegt að þeir sem starfa við þetta eigi að geta samið um sinn vinnutíma án þess að það sé endilega niðurnjörvað í lög. Það ætti að gerast í gegnum kjarasamninga eða sérkjarasamninga sem hægt er að gera um slíka hluti.

Það sem mér finnst auðvitað bara rétt og gaman að sjá er að við erum á réttri leið með þetta. En við erum auðvitað bara svekkt yfir að þessi málaflokkur sé ekki nægjanlega vel fjármagnaður.