152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

almannavarnir.

181. mál
[19:06]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir ágæta framsögu, hún fór mjög vel yfir nefndarálitið og umfjöllun nefndarinnar. Þetta hefur verið fróðlegt fyrir mig sem kannski áttaði mig ekki á hversu flókið þetta fyrirkomulag væri og mikilvægt að allir hnútar væru rétt hnýttir þannig að hægt sé að bregðast hratt við. Við búum auðvitað við mjög dramatískar aðstæður og náttúruöflin geta leikið okkur grátt eins og við sjáum. Með samtakamætti og tækninni höfum við náð að yfirvinna það og í besta falli getum við komið í veg fyrir hamfarir og stórslys. Við erum reglulega minnt á þetta með óveðri eða aurskriðum, eldgosum, snjóflóðum og hvað þetta allt heitir. Ég get ekki státað mig af því eða sagt frá því að ég hafi yfirgripsmikla þekkingu eða aðkomu að björgunarmálum hér, og hvað þá erlendis, eins og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson hefur. En það hefur vissulega verið gagnlegt að hafa fólk í nefndinni sem hefur þessa þekkingu og hefur getað aðstoðað okkur og bent á sjónarmið og tekið undir með gestum og umsagnaraðilum. Eitt af því er auðvitað það sem hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni áðan, það þarf að vera mögulegt að fá erlenda aðstoð, tækjabúnað og fjórfætt kvikindi líka án þess að það stoppi allt á landamærum. Ég tek jafnframt undir það með hv. formanni nefndarinnar að við getum og eigum að reiða okkur á okkar næstu nágranna sem búa yfir meiri mannafla — kannski ekki næstu nágranna en nágranna okkar í Skandinavíu, þannig að ég tek undir það.

Ég kom fyrst og fremst hingað upp til að ræða tvö atriði. Í fyrsta lagi virðist mér eins og að það séu engar stórkostlegar eðlisbreytingar sem muni fylgja í kjölfar þessara frumvarpa. Mér virtist a.m.k. eins og það væri miklu meira verið að sníða frumvarpið að því viðbragði og því verklagi sem er að einhverju leyti viðhaft núna, gera það skýrara og skilvirkara. Það kann að vera misskilningur en mér finnst að það hafi verið stefið hjá mörgum. En nánast allir sem komu fyrir nefndina og sendu inn umsagnir ræddu það að mjög mikilvægt væri að ráðast í þessa heildarendurskoðun. Ég vil bara taka undir með þeim sem hafa sagt að það er ekki eftir neinu að bíða. Við þurfum auðvitað að gefa okkur góðan tíma í það en það er eðlilegt að hefjast handa sem fyrst.

Í öðru lagi var eitt risastórt mál í þessu frumvarpi sem sátt náðist um að taka út, sem betur fer, og það eru breytingar á 12. gr., er varðar borgaralega skyldu opinberra aðila. Nú er ég ekki að gera lítið úr því að sveigjanleiki kann að vera mjög nauðsynlegur þegar viðbrögð þurfa að vera snögg og almennt held ég að einstaklingar séu þannig gerðir að á vályndum tímum og við mannskæð atvik þá hlaupi þeir í flest verk. En það verður auðvitað að gæta hófs og þessar tímabundnu heimildir sem voru settar inn og notaðar í Covid gerðu það að verkum að verið var að nýta þetta í full tvö ár. Við vitum það hins vegar öll að faraldurinn átti sínar hæðir og lægðir og kannski var ekki alltaf jafn nauðsynlegt að nýta þessar heimildir. Við fengum svo sem ekki mörg dæmi frá gestum um að þetta hefði verið stórkostlega misnotað en þó var það nefnt sérstaklega frá talsmönnum opinberu stéttarfélaganna að misbrestur hafi verið þar á. Það vantaði t.d. ýmislegt sem tryggir að fólk sem þarf að vinna allt annars konar vinnutíma, jafnvel um helgar eða lengra fram eftir á kvöldin, eða eins og kennarar lengra fram á sumarið og annað, fái þann tíma bættan. Það er lágmark að fólki sé bættur sá vinnutími sem þetta hefur í för með sér. Ég held að þetta sé eitt af því sem þarf að skoða og taka fyrir í heildarendurskoðuninni. En ég ítreka að það þarf að gera það í mjög góðri samvinnu og sátt við opinbera vinnumarkaðinn. Annars mun þetta ekki ganga upp. Ég get bara lýst aftur ánægju minni með að það skapaðist strax, fannst mér, skilningur á því hjá nefndarfólki að mögulega þyrfti að víkja þessu til hliðar og enn betra að dómsmálaráðherra hafi verið sama sinnis og þetta hafi verið lagt til hliðar í bili.

En ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta frumvarp. Þetta er gott mál og hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson hvatti okkur til að vinna hratt og örugglega. Við erum búin að vinna þetta mjög nákvæmlega og höfum tekið okkur tíma í þetta. En mér sýnist nú fljótlega koma að leiðarlokum og ég sé ekkert benda til annars en að þetta verði samþykkt í mjög góðri sátt.