152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

matvæli og eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.

475. mál
[19:44]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að taka þátt í þessari umræðu með mér. Það sem ég var að tala um að væri langsótt var kannski meira að þessi ræða mín um Evrópusambandið var kannski á köflum svolítið langsótt í samhengi við það mál sem hér er til umfjöllunar. En það má alltaf útvíkka umræðuna eins og við vitum. Ég var í sjálfu sér ekki að reyna að bera saman Vestnorræna ráðið og Evrópusambandið á nokkurn hátt. Þetta eru mjög ólík fyrirbæri. En inntakið vildi ég segja að væri kannski sambærilegt á þann hátt að þarna koma ríki saman og vinna sameiginlega að einhverjum hagsmunum. Þessir hagsmunir geta verið alveg ótrúlega víðir og miklir.

En af því að hv. þingmaður, eins og oft er talað um af þeim sem sjá rautt og froðufella þegar Evrópusambandið ber á góma, vísaði til þess að þetta sé fyrst og fremst tollabandalag og svo er farið að rifja upp að þetta hafi í upphafi snúist um kol og stál, þá langar mig að nefna að hryggjarstykkið í þessu öllu saman og upphafið er auðvitað friðarbandalag, sem er auðvitað ákaflega gott að vísa til núna þegar svona viðsjárverðir tímar eru í Evrópu og öll ríki álfunnar eru að þétta raðirnar gagnvart utanaðkomandi ógn. En síðan er það auðvitað ekki síst á sviði umhverfis- og loftslagsmála, á sviði mannréttindamála þar sem komið er að lýðréttindum, jafnréttismálum og alls konar efnahagsmálum, þar sem Evrópusambandið lætur til sín taka. Ég get alveg fullvissað hv. þingmann um það að Evrópusambandið er ekki jafn hræðilegt og hann heldur.