matvæli og eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað meira sagt í stráksskap þegar ég tala um að menn séu eitthvað að froðufella þegar minnst er á Evrópusambandið. Ég veit að hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson, sem hér veitti andsvar, er nú svo dagfarsprúður maður að hann heldur sínu góða geði og sínu brosi þótt talað sé mikið um Evrópusambandið. En það er hins vegar alveg rétt að þetta er alltaf hagsmunamat.
Mig langaði bara að koma inn á það núna að það er rosalega eðlilegt að við skiptumst í fylkingar og höfum mjög sterkar skoðanir á þessum málum af því að þetta er einmitt hagsmunamat. Við erum að vega og meta hagsmuni á milli ýmissa atvinnugreina. Við erum að ræða um tolla eða ekki tolla. Við erum að tala um afstöðu okkar til ýmissa mannréttindamála, um efnahagsmál og allt þetta sem ég var að tala um áðan. Auðvitað getum við ekki verið sammála um alla þessa hluti. Þó vil ég nefna, sem var ástæðan fyrir því að ég kom hingað upp áðan og sem færir okkur þá kannski frá líkingunni við Vestnorræna ráðið, að við erum að taka á móti svo miklu af tilskipunum og löggjöf og öðru og setja inn í íslenskan veruleika án þess að eiga sæti við borðið eins og gjarnan er sagt. Þetta skiptir verulega miklu máli. En þá koma menn með þessa hugmynd um að við megum okkur ekki mikils, við séum bara lítil þjóð og eigum fáa einstaklinga þarna úti og gætum lítil áhrif haft. Það er einfaldlega ekki rétt vegna þess að menn mynda með sér bandalög þarna um hagsmuni sína alveg eins og við gerum í smærri einingum í okkar samfélagi og ná þannig árangri.
Ég er bara að reyna að halda þessu á lofti. Ég skil vel þá sem meta hagsmuni þjóðarinnar með öðrum hætti en ég. Við verðum bara að fá að vera ósammála um þetta. Úr því að við erum að ræða þetta, er þá ekki orðið tímabært að setja bara málið almennilega á dagskrá, hafa upplýsta umræðu með þjóðinni og leyfa henni sjálfri að ákveða hvort við förum í aðildarviðræður eða ekki?