152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

hjúskaparlög.

163. mál
[19:51]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Jóhann Friðrik Friðriksson) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum, nr. 31/1993. Frumvarpið felur í sér breytingar á ýmsum þáttum hjúskaparlaga, breytingar er varða undanþáguheimildir vegna lágmarksaldurs til þess að stofna til hjúskapar, könnun hjónavígsluskilyrða, lögsögu í hjónaskilnaðarmálum, auk tilfærslu verkefna frá ráðuneyti til sýslumanna.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir og greint er frá þeim í nefndaráliti sem liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta nokkur atriði sérstaklega.

Nefndin fjallaði um aldur hjónaefna en með frumvarpinu er lagt til að felld verði brott heimild til undanþágu frá því að einstaklingur yngri en 18 ára megi ganga í hjúskap. Nefndin telur breytinguna mikilvæga og bendir á að með því er íslensk löggjöf færð til samræmis við alþjóðleg tilmæli og breytingar sem gerðar hafa verið á lögum annars staðar á Norðurlöndunum.

Þá fjallaði nefndin um könnun á hjónavígsluskilyrðum, en með frumvarpinu er lagt til að sú könnun fari einungis fram hjá sýslumönnum hvort sem hjónaefni eiga lögheimili hér á landi eða ekki. Meiri hlutinn telur mikilvægt að samhliða þessari breytingu verði lögð áhersla á að einfalda ferlið með rafrænum lausnum.

Nefndin fjallaði að auki um viðurkenningu á hjónavígslu sem stofnað er til erlendis en í frumvarpinu er fjallað sérstaklega um viðurkenningu á hjúskap sem stofnað er til erlendis þegar einstaklingur hefur ekki náð 18 ára aldri. Slíkur hjúskapur er almennt ekki viðurkenndur hér á landi. Með frumvarpinu verður þó veitt þröng heimild til að víkja frá því og viðurkenna hjúskap hér á landi hjá einstaklingi sem var yngri en 18 ára þegar hjónavígsla fór fram. Sérstaklega þarf þó að standa á og ótvíræðir hagsmunir þurfa að krefjast þess og hjúskapurinn þarf að vera viðurkenndur í því landi sem hjónavígslan fór fram og viðkomandi þarf á þeim tíma hafa náð 16 ára aldri. Meiri hlutinn áréttar að taka skuli mið af því sem barni er fyrir bestu. Með því að mæla fyrir um lágmarksaldur er skýrt að ekki er hægt að fallast á að yngri einstaklingar geti undir neinum kringumstæðum haft hagsmuni af því að ganga í hjúskap. Þá bendir meiri hlutinn á að ef einstaklingar koma hingað til lands mörgum árum eftir að til hjúskapar hefur verið stofnað sé ekkert því til fyrirstöðu að viðkomandi einstaklingar gangi tafarlaust í hjónaband ef hjúskapur þeirra er ekki viðurkenndur hér á landi. Meiri hlutinn áréttar jafnframt nauðsyn þess að ef viðurkenningu á hjúskap er synjað verði leitast við að aðstoða þá einstaklinga sem í hlut eiga í samræmi við aðstæður og eftir því sem þörf krefur og upplýsa þá um réttarstöðu sína og úrræði.

Virðulegi forseti. Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til breytingar á frumvarpinu. Í fyrsta lagi er lögð til breyting er varðar stafræna könnun hjónavígsluskilyrða sem miðar að því að innleiða vefviðmót fyrir rafrænar umsóknir um könnun hjónavígsluskilyrða. Grundvallast sú breyting á tillögu dómsmálaráðuneytisins til nefndarinnar. Meiri hlutinn telur að um mikilvægt framfaraskref sé að ræða í stafrænum lausnum og telur þær breytingar sem ráðuneytið leggur til til bóta. Áréttar meiri hlutinn að verði breytingarnar samþykktar þurfi að fara fram samráð við innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneyti um nánari útfærslu gjaldtöku fyrir vottorð sem gefin eru út af Þjóðskrá Íslands og áhrif af nýju verklagi á rekstur þeirrar stofnunar. Lagt er til að breyting þessi öðlist gildi 1. september 2022.

Í öðru lagi er lögð til breyting er varðar dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar samkvæmt útlendingalögum til að koma í veg fyrir misræmi á milli ákvæða hjúskaparlaga og útlendingalaga. Grundvallast sú breyting á tillögu dómsmálaráðuneytis til nefndarinnar. Er lagt til að við frumvarpið bætist ákvæði um breytingu á útlendingalögum þannig að við mat á því hvort veitt verði dvalarleyfi á grundvelli 70. gr. útlendingalaga verði heimilt að líta til þess hvort hjúskapur, sem til var stofnað áður en hjónaefni varð 18 ára, hafi verið viðurkenndur samkvæmt úrskurði sýslumanns eða ráðuneytis samkvæmt 25. gr. a hjúskaparlaga.

Þá eru lagðar til minni háttar tæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar. Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hlutans.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í nefndaráliti.

Undir álit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita,, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Bryndís Haraldsdóttir, Birgir Þórarinsson, Hilda Jana Gísladóttir, Iða Marsibil Jónsdóttir og Jódís Skúladóttir. Tekið skal fram að Bergþór Ólason og Eyjólfur Ármannsson voru fjarverandi við afgreiðsluna.