152. löggjafarþing — 84. fundur,  2. júní 2022.

hjúskaparlög.

163. mál
[19:57]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóhanni Friðrik Friðrikssyni fyrir framsögu nefndarálits í þessu máli. Þetta er að sjálfsögðu mikilvægt mál þar sem verið er að tryggja að börn séu ekki hneppt í hjónaband þegar þau hafa ekki aldur til þess eða aldur til að taka ákvarðanir um slíkt, enda ekki búin að ná þeim aldri sem almennt er viðurkennt í nágrannalöndum okkar að sé sá aldur sem fólk ætti að hafa áður en það tekur slíkar alvarlegar ákvarðanir. Mig langar líka að taka fram að það er ánægjulegt að sjá að það er kannski verið að hugsa svolítið út fyrir gamla einfalda boxið þar sem allir giftust á Íslandi. Það er náttúrlega þannig að það er til fólk sem hefur gift sig og orðið ástfangið erlendis, hvort sem það eru Íslendingar eða fólk af erlendu bergi brotið. Það er mikilvægt að við færum inn í okkar löggjöf reglur sem taka tillit til þess.

Það er líka ánægjulegt að sjá það í frumvarpinu, sem ég sá reyndar ekki fjallað neitt að ráði um í nefndarálitinu, að þar er verið að tækla mál sem hafa komið upp varðandi hjónaskilnaði þegar t.d. annar aðilinn er búsettur erlendis eða jafnvel fólk sem býr hér á landi og hefur gifst hér á landi en fær t.d. vegna kynhneigðar þá hjónavígslu ekki endilega viðurkennda í sínu heimalandi og á þar af leiðandi erfitt með að fá hjónaskilnað. Það er ánægjulegt að sjá þetta og mikilvægt að við séum að vinna í þessu eins og tafla 1 sem fylgir með frumvarpinu sýnir og kemur reyndar beint upp úr fyrirspurn frá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni.

Það eina sem ég hefði viljað sjá að væri bætt inn í þetta frumvarp, þar sem verið er að laga ýmislegt í hjúskaparlögunum, er að horft hefði verið til hugmynda sem hafa komið fram á fyrri þingum, ég held einmitt frá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, um skilnað án undanfara. Það er þannig í dag að fólki er fyrst veittur skilnaður að borði og sæng og svo lögskilnaður nema annar aðilinn játi á sig hjúskaparbrot. Það er víst orðið ansi algengt að fólk bara játi það á sig, hvort sem það hefur raunverulega framið það brot eða ekki, vegna þess að það flýtir ferlinu þegar fólk er hvort eð er sammála um að það vilji skilja, er kannski ekki með börn eða er búið að semja um fyrirkomulagið með börnin. Það er von mín að við skoðum það fljótlega að laga þann annmarka sem er á núgildandi lögum vegna þess að ég tel það vera réttarbót fyrir fólk að geta slitið samvistum hraðar en núverandi lög gera ráð fyrir. En annars þakka ég bara hv. allsherjar- og menntamálanefnd fyrir gott starf.