152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

staðan á bráðamóttöku LSH.

[13:54]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér er vissulega verið að snerta á mjög mikilvægu máli sem varðar heilbrigðisþjónustuna í landinu og því er haldið fram að með því að láta Landspítalann hafa aukið fjármagn þá leysist öll okkar vandamál. Ég held að málið sé því miður ekki svo einfalt. Hér voru nefndir hlutir eins og biðlistar en mér hefur þótt í umræðu undanfarinna ára að hv. þingmaður, og kannski Samfylkingin sérstaklega, væri ekkert endilega til í að gera það sem hefði getað létt á biðlistum, að horfa til fjölbreyttari úrræða svo dæmi sé tekið. Hér var nefndur mönnunarvandi. Mönnunarvandinn einn og sér verður ekki leystur með aukinni fjárheimild til Landspítalans. Við hljótum að geta verið sammála um það. Hér var nefnt ástandið á bráðamóttökunni. Ég hélt að við værum sammála um það að ástandið á bráðamóttökunni verður ekki leyst með öðrum hætti en þeim annars vegar að bæta mönnunina en hins vegar með því að tryggja að fólk sem á ekki að liggja þar inni á göngum heldur vera annars staðar fái rými. Til að gera það höfum við verið að opna á undanförnum árum rými, ég nefni það sem hefur verið gert á Vífilsstöðum og ég nefni það sem hefur verið gert á Landakoti. En við höfum ekki einu sinni getað náð að manna þau pláss sem þó áttu að standa opin þar. Þannig að fjármagnið hefur verið til staðar en okkur hefur ekki tekist að fá fólk til að sinna plássunum. Þetta eru staðreyndir. Þess vegna segi ég: Það er eflaust í pólitískum tilgangi dálítið freistandi að koma með þessa einföldu mynd, spyrja fjármálaráðherrann: Geturðu ekki bara mokað peningum í vandann og þá hverfur vandamálið? En það er því miður ekki svona. Við erum með t.d. á fjárlögum þessa árs vannýttar fjárfestingarheimildir fyrir hjúkrunarrými upp á um 3 milljarða. Þar koma inn alls konar hlutir (Forseti hringir.) sem hafa með skipulagsmál, samstarf við sveitarfélögin að gera. Það hefur alls ekki (Forseti hringir.) skort fjármagnið. Það er víða annars staðar (Forseti hringir.) þar sem við þurfum að ráðast að rót vandans.