152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

leiðrétting kjara kvennastétta.

[14:02]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Staðreyndir málsins eru þær að launamunur kynjanna hefur dregist saman á undanförnum árum, hvort sem litið er til almenna markaðarins eða opinbera markaðarins. Þar sjáum við þá stöðu að munurinn er minnstur hjá sveitarfélögum, svo hjá ríki og mestur á almenna markaðnum. Þetta gildir bæði um óleiðréttan og leiðréttan launamun.

Ég vil nú minna hv. þingmann á, af því að hún var ein af þeim sem hafði forystu um það að mæla fyrir jafnlaunavottun sem ég hef fengið það hlutverk að innleiða, að nú er það svo að jafnlaunavottunin nær yfir meira en 100.000 starfsmenn, sem er eftirtektarverður árangur. Ég tel að þegar við horfum á þessa stöðu þar sem launamunurinn hefur dregist saman jafnt og þétt, getum við að mörgu leyti þakkað aðgerðum stjórnvalda. Þegar við lítum á þann launamun sem eftir stendur þá er það mín sannfæring að hann megi að mestu leyti skýra með þessum kynskipta vinnumarkaði sem hv. þingmaður gerir að umtalsefni í sinni fyrirspurn. Þar er nú að störfum sérstakur aðgerðahópur sem er einmitt skipaður aðilum vinnumarkaðarins og stjórnvalda, bæði ríkis og sveitarfélaga, þar sem við erum að horfa á það hvernig við getum tekist á við að leiðrétta þann launamun sem er milli ólíkra greina; kvennastéttanna, sem hv. þingmaður nefnir svo, og annarra stétta í samfélaginu. Þetta er heilmikið verkefni en þar erum við langt komin í vinnu aðgerðahópsins.

Ég hef líka hlustað eftir orðum formanns BHM og ég fagna því ef hægt er að ná sátt og skilningi á vinnumarkaði um að þarna sé aðgerða þörf þannig að við náum því lokamarkmiði að útrýma hér kynbundnum launamun. Við erum búin að stíga mörg skref og við sjáum þegar við skoðum þróunina milli ára, tíu ár aftur í tímann, að þróunin hefur verið í rétta átt. En lokamarkmiðið er að sjálfsögðu að útrýma kynbundnum launamun.