leiðrétting kjara kvennastétta.
Virðulegi forseti. Þessi ríkisstjórn var ekki að taka við stjórnartaumunum bara í gær. Í fimm ár hefur lítið sem ekkert gerst í kynbundnum launamun í opinbera geiranum. Og hvaða ástand blasir við í dag? Þetta er ákall um allt samfélag. Einn stærsti vandi okkar í heilbrigðiskerfinu er einmitt ekki eingöngu það að setja aukið fjármagn, það þarf meira fjármagn inn í heilbrigðiskerfið en það þarf að fara markvisst í það og sýna forystu í því að jafna kynbundinn launamun innan hins opinbera. Þessu er BHM að kalla eftir og þessu eru hjúkrunarfræðingar, sem skrifa átakanlega pistla hvort sem það er inn á samfélagsmiðla eða eru bara að tala inn í sína hópa, að greina frá. Þessu þarf að taka á því að þetta jafnréttismál er eitt stærsta velferðarmálið. Ég vona að forsætisráðherra eftir fimm ár skilji þetta ákall. (Forseti hringir.) Hvort sem við erum að tala um heilbrigðisstéttir eða aðrar kvennastéttir innan hins opinbera þá þurfum við (Forseti hringir.) að taka á nákvæmlega þessu. Við þurfum þjóðarsátt um að leiðrétta kynbundinn launamun innan hins opinbera.