152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

leiðrétting kjara kvennastétta.

[14:06]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því að ég skilji þetta ekki mætavel. Ég skil þetta mætavel og hef einmitt beitt mér af krafti fyrir innleiðingu jafnlaunavottunar og árangurinn skilar sér. Hv. þingmaður talar um að ekkert hafi gerst í launamun hjá hinu opinbera en það er einfaldlega ekki rétt. Hann hefur dregist saman og nemur heilu prósentustigi hjá ríki og um hálfu prósenti hjá sveitarfélögum. Hann minnkaði mest hjá ríkinu á síðasta kjörtímabili og hv. þingmaður getur spurt sig hvort það sé tilviljun. Ég segi að það sé ekki tilviljun. Þegar um er að ræða hins vegar mönnun heilbrigðiskerfisins þar sem vissulega er þörf á að koma til móts við kvennastéttir vil ég minna hv. þingmann á það, því að hún nefndi það ekki í fyrirspurn sinni, að þeir samningar sem voru gerðir um breytingar á vaktavinnufyrirkomulagi eru mögulega eitt stærsta skrefið sem stigið hefur verið einmitt til að koma til móts við þessar stóru kvennastéttir, nokkuð sem ekki hefur breyst í mörg ár fyrr en þetta samkomulag var gert. Þarf að gera meira? Já, og þess vegna vitnaði ég til þess aðgerðahóps sem ég hef skipað og er að störfum en minni líka á að mönnun heilbrigðiskerfa (Forseti hringir.) er því miður ekki séríslenskt vandamál. Þar erum við að glíma (Forseti hringir.) við sömu áskoranir og mörg nágrannaríki okkar sem verða áfram stórar áskoranir. (ÞKG: … að vera í forystu.)