óréttlæti í sjávarútvegskerfinu.
Virðulegur forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra sem formanns Sjálfstæðisflokksins og stærsta stjórnarflokksins í ríkisstjórninni. Í stjórnarsáttmálanum kemur fram undir liðnum sjávarútvegsmál, með leyfi forseta:
„Skipuð verður nefnd til að kortleggja áskoranir og tækifæri í sjávarútvegi og tengdum greinum og meta þjóðhagslegan ávinning fiskveiðistjórnarkerfsins.“
Þann 31. maí síðastliðinn tilkynnti hæstv. matvælaráðherra um skipun nefnda, nokkuð fjölmennra, þar sem á að kortleggja þessa þætti og eitt og annað til viðbótar. En það sem mig langar til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra sem formann Sjálfstæðisflokksins er uppleggið sem lagt var af stað með þann 31. maí í tilkynningu matvælaráðherra þar sem segir, með leyfi forseta:
„Í sjávarútvegi ríkir djúpstæð tilfinning meðal almennings um óréttlæti.“
Sömuleiðis segir, með leyfi forseta:
„Sú tilfinning tel ég að stafi aðallega af tvennu; samþjöppun veiðiheimilda og þeirri tilfinningu að ágóðanum af sameiginlegri auðlind landsmanna sé ekki skipt á réttlátan hátt.“
Síðan segir áfram:
„Fyrirhugaðar lokaafurðir þessa starfs eru m.a. ný heildarlög um stjórn fiskveiða …“
Mig langar til að spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Er þetta uppleggið sem horft var til í stjórnarsáttmálanum? Deilir hæstv. ráðherra þeirri skoðun hæstv. matvælaráðherra að það sé djúpstæð tilfinning meðal almennings um óréttlæti í sjávarútvegskerfinu og er horft til þess að á kjörtímabilinu verði formuð og samþykkt á forsendum ríkisstjórnarinnar ný heildarlög um stjórn fiskveiða, eins og hæstv. matvælaráðherra sagði í inngangsorðum sínum í tengslum við skipun þessara nefnda?