152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

óréttlæti í sjávarútvegskerfinu.

[14:09]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þingmaður vera að velta því upp hvort ég kannist við að sjávarútvegsmálin verði oft tilefni til átaka og pólitískrar umræðu í samfélaginu. Jú, ég verð nú að kannast við það og ég verð að kannast við að það eru býsna ólíkar skoðanir jafnvel hér á þinginu og í samfélaginu um hvernig eigi úr að spila. Ég man eftir texta sem einu sinni var fluttur og varð vinsæll. Í honum sagði m.a.: „Á skrifstofunni arðræninginn situr og hlær, því línuritið sýnir að afköstin eru meiri í dag en í gær.“ Mér finnst þessi setning úr Ísbjarnarblús Bubba Morthens segja alveg ótrúlega mikið um ákveðna sýn á sjávarútvegskerfi þess tíma.

Nú, býsna mörgum árum síðar, erum við enn í umræðu um það hvort við getum gert betur, hvort við getum búið til kerfi sem skapar meiri sátt. Ég held reyndar að frá þessum tíma þegar textinn var saminn og sunginn og Verbúðin vísar til þá hafi orðið gríðarlega miklar framfarir sem hafi nýst þjóðarbúinu í heild mjög vel. Við njótum góðs af þeim breytingum með því að hafa tekjur af sjávarútvegsauðlindinni sem þjóðarbú, sem hjálpar okkur að standa undir sameiginlegum verkefnum. Þannig að já, ég verð að kannast við það sem matvælaráðherra hefur bent á, að það ríki víða tilfinning um óréttlæti, að ágóðanum sé mögulega ekki skipt réttilega og það séu oft átök á milli byggðarlaga þegar kvóti færist á milli. Og frjálsa framsalið olli vissulega mikilli spennu. En við erum, held ég, hvert fyrir sig, flokkarnir hér á þingi með okkar svar (Forseti hringir.) við því nákvæmlega hvernig úr á að spila. Þetta er endalaus (Forseti hringir.) jafnvægislist, en ég hef lagt áherslu á það í minni nálgun að við töpum ekki þessari heildarsýn, heildarávinningi þjóðarbúsins (Forseti hringir.) af því að stunda fiskveiðar.