152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

óréttlæti í sjávarútvegskerfinu.

[14:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef sagt við matvælaráðherra að það sé mjög metnaðarfullt markmið og við skulum sjá. Nú er vinnan rétt að hefjast og það kann að vera að það sé hægt. Við höfum áður reynt að nálgast málið með því að, við skulum segja kasta netinu vítt. Það gerðum við í sáttanefndinni þar sem við ræddum um það með alls konar fyrirvörum og bókunum að gera grundvallarbreytingar sem hefðu getað leitt af sér nýja fiskveiðistjórnarlöggjöf. Ég skal ekki útiloka að það verði niðurstaðan í þessu verkefni, þessari vinnu sem núna er farin af stað en það er ekki í sjálfu sér markmiðið eins og ég horfi á það, heldur að okkur takist að leggja mat á þær breytingar sem hafa orðið í greininni undanfarin ár og kannski lengri tíma aftur í tímann spyrja okkur: Hvar stöndum við nú? Hvar getum við horft til tækifæra framtíðar? Ef við horfum á sjávarútvegsskýrsluna sem kom út vorið 2021 og fór svona aðeins fyrir ofan garð og neðan út af öðrum pólitískum málum (Forseti hringir.) þá er þar verið að benda á aragrúa af tækifærum (Forseti hringir.) fyrir þjóðarbúið til að auka verðmætasköpun og ég er mest að fylgjast með því.