hækkanir á fasteignamati.
Virðulegur forseti. Vegna gríðarlegrar hækkunar á fasteignamati sem tilkynnt var í síðustu viku má minna á það að í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis liggur frumvarp sem ég ásamt Flokki fólksins lagði fram í desember og flutti fyrir þinginu í mars til að stöðva sjálfkrafa hækkanir fasteignaskatta með hækkandi fasteignamati. Frumvarpið byggir á þeirri meginreglu að skattar eigi aldrei að hækka sjálfkrafa heldur þurfi alltaf að fara fram umræða hjá þar til bærum yfirvöldum sem síðan leiði til ákvörðunar sem einhver eða einhverjir bera pólitíska ábyrgð á. Þannig er því ekki farið með fasteignaskatta. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að stjórnmálamenn beri ábyrgð á þeim sköttum sem lagðir eru á heimili og fyrirtæki. Það hefur verið ánægjulegt að heyra málflutning hæstv. ráðherra á undanförnum dögum þar sem hann tekur undir allt eða svo til allt sem þetta frumvarp tekur á, en það situr fast inni í efnahags- og viðskiptanefnd. Það frumvarp hefði leyst margt af því sem við stöndum frammi fyrir í dag vegna hækkunar fasteignamats. Hæstv. fjármálaráðherra hefur oft rætt um góða eiginfjárstöðu heimilanna og það er ljóst að hún mun enn batna með þessum hækkunum. Þetta lítur gríðarlega vel út á pappír en lengra nær það ekki. Þessar hækkanir upp á tugi prósenta eru ekki vegna þess að tekjur fólks hafi hækkað eða skuldir þeirra lækkað. Þetta stafar eingöngu af því að húsnæðismarkaðurinn er í algjöru uppnámi, svo ekki sé fastar kveðið að orði, og hlutfallið hefur breyst.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra eftirfarandi spurninga:
1. Telur ráðherra koma til greina að gera almenna endurskoðun á skattkerfinu til að útrýma sjálfvirkum tengingum skatta og opinberra gjalda við gjaldstofna sem ekki eru á valdi kjörinna fulltrúa heldur háðir duttlungum markaðarins?
2. Telur ráðherra réttlætanlegt að álögur á einstaklinga og fyrirtæki aukist um tugi prósenta án þess að neinar auknar tekjur komi á móti? Þessi spurning á alltaf við en ekki síst í því efnahagsástandi sem nú ríkir þar sem verðbólga og vaxtahækkanir hafa aukist gríðarlega og sér ekki enn fyrir endann á því.
3. Telur ráðherra koma til greina að hækka skerðingarmörk vaxtabóta vegna eigna til að mæta þeim auknu skerðingum sem annars myndu leiða af mikilli hækkun fasteignamats (Forseti hringir.) um næstu áramót með tilliti til þess að tekjur margra í viðkomandi hópum hafa ekki hækkað umfram almennar vísitöluhækkanir?