152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

hækkanir á fasteignamati.

[14:17]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er mál sem hefur fengið aukið vægi núna vegna þeirra miklu breytinga á fasteignamati sem er að eiga sér stað og er í mínum huga mikilvægt. Þá má ekki gleyma því að sveitarstjórnir hafa hjá sér valdið til að bregðast við og að því leytinu til er ég dálítið tregur til að grípa fram fyrir hendurnar á sveitarstjórnarstiginu sem er með sína sjálfstæðu tekjustofna, sjálfstæð verkefni, ber ábyrgð á þeim en hefur líka sjálfstæða tekjustofna. Við getum ekki, þegar okkur líst þannig á að tekjustofnarnir séu að þróast með óeðlilegum hætti, bara valið hvenær við grípum inn í, heldur verðum að eiga samtal við sveitarstjórnarstigið ef meiningin er að endurskoða þennan þátt sérstaklega. Það þyrfti að vera í einhverju heildarsamhengi tekjuskiptingar ríkis og sveitarfélaga. Það breytir því ekki að það er mín sannfæring að það sé ósanngjarnt að heimili og atvinnurekstur taki á sig stóraukna skattbyrði fyrir það sem er að gerast á markaðnum án þess að tekjur hafi fylgt með og ég er almennt þeirrar skoðunar. Þess vegna hef ég t.d. verið á móti eignarsköttum og hef fært fyrir því í raun og veru nákvæmlega sömu rök. Eignarskattarnir eru síðan alltaf réttlættir með því að þeir séu hóflegir o.s.frv., en þeir verka í grunninn samt sem áður með sama hætti og hér á við. Ég tek eftir því að sveitarfélögin virðast oftast vilja láta fasteignaskattinn bara fylgja verðlagi þannig að það eitt og sér er samt sem áður íþyngjandi fyrir þá sem hafa ekki tekjur sem fylgja verðlagi um þessar mundir. Að því leytinu til skiptir máli að þetta sé skoðað.

Ég get ekki svarað spurningunni sem kom fremst almennt með öðrum hætti. Í einhverjum tilvikum er það óumflýjanlegt að skattstofnar séu (Forseti hringir.) eitthvað háðir duttlungum markaðarins en það á við í báðar áttir. Þegar t.d. hlutabréfamarkaðir (Forseti hringir.) fara upp þá aukast fjármagnstekjurnar en þegar þeir fara allir niður þá lækka þær.