152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

hækkanir á fasteignamati.

[14:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Já, ég er áfram þeirrar skoðunar að þetta geti komið mjög illa niður á heimilum og rekstraraðilum ef því er að skipta. Ég held hins vegar að það sé kannski meira áberandi hjá tekjulágum að þetta verði svo íþyngjandi að viðkomandi lendi í vandræðum þess vegna og þar finnst mér að sveitarfélögin hafi skyldum að gegna að gæta að því að þeirra tekjuheimta sé ekki framkvæmd þannig að fólk sem býr í viðkomandi sveitarfélagi lendi beinlínis í vandræðum. En það er síðan líka rétt hjá hv. þingmanni að þetta leggst margt saman, vaxandi húsnæðiskostnaður, hækkandi eldsneytisverð, það koma hærri skattar hjá þeim sveitarfélögum sem ætla ekki að endurskoða prósentuna. Þrátt fyrir allt þetta og að ég sé sammála þessu ætla ég samt sem áður að halda því til haga að ég á dálítið erfitt með að taka á mig ábyrgðina á því hvernig úr þessu spilast vegna þess að ábyrgðin liggur svo skýrlega hjá sveitarstjórnunum.