152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

[14:22]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Ég vil spyrja hæstv. fjármálaráðherra út í fyrirhugaða breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Samkvæmt frumvarpi á að framlengja bráðabirgðaákvæði um sérstakan skattfrádrátt vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar en á sama tíma að lækka hlutfall frádráttarins úr 35% í 30% hjá smærri frumkvöðlafyrirtækjum. Lækkunin væri mikil vonbrigði fyrir íslenskt nýsköpunarumhverfi. Samkvæmt umsögn Samtaka sprotafyrirtækja myndi breytingin lækka endurgreiðslu um 14%. Frávik sem þessi setja afar stórt strik í reikninginn fyrir sprotafyrirtæki sem standa í mikilli rannsóknar- og þróunarvinnu því þau hafa ekki tekjustreymi til að mæta tapinu. Sprotafyrirtæki gera ráð fyrir því að stuðningur hins opinbera haldist fyrirsjáanlegur og haga fjárhagsáætlunum sínum í takt við það. Ekki er nóg með að hér sé farið á mis við þarfir sprotanna heldur gengur breytingin líka í berhögg við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Þar segir, með leyfi forseta:

„Tímabundin hækkun endurgreiðsluhlutfalls vegna kostnaðar sem fellur til við rannsóknir og þróun verður gerð varanleg.“

Hver mánuður, hver króna skiptir máli í rekstri sprotafyrirtækja. Fjármálaráðuneytið veit það fullvel. Samt mótar það fjármálaáætlun sem gerir ráð fyrir að lækka hlutfallið alfarið án samráðs við nýsköpunarfyrirtækin. Ráðherra leggur svo fram frumvarp sem breytir lögum að óþörfu og þvert á yfirlýst markmið stjórnarsáttmálans til þess eins að tryggja að áætlun ráðuneytisins sé mætt.

Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort honum finnist ráðleg vinnubrögð að laga lögin að fjármálaáætlun hverju sinni en ekki öfugt. Á fjármálaráðuneytið að hafa lokaorðið um hvaða lögum sé unnt að framfylgja, samanber niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu, stuðning til kvikmyndageirans og nú stuðning við nýsköpunarfyrirtæki, (Forseti hringir.) eða á fjármálaráðuneytið ekki að laga áætlunina að þeim þörfum sem lögin gera ráð fyrir?