152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.

[14:25]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegur forseti. Við skulum bara byrja á því að afgreiða þessa síðustu spurningu fyrst með því að segja að fjárveitingavaldið er hjá Alþingi og í sjálfu sér þegar lög hafa verið sett um framlög til einstakra málaflokka þá trompa þau fjármálaáætlunina í ákveðnum skilningi. En hér er sem sagt um að ræða frumvarp sem er til komið vegna þess að um síðustu áramót rann bráðabirgðaákvæðið út. Þetta kerfi er til heildarendurskoðunar, eins og hv. þingmaður veit, og brúa þurfti bilið frá síðustu áramótum fram að því að þeirri heildarendurskoðun er lokið. Þess vegna kom þetta frumvarp fram.

Ég hef tekið eftir því að hv. þingmaður er mest að hugsa um sprotafyrirtæki sem enn eru í hallarekstri. Hér er komið inn á ákveðið grundvallaratriði sem er það að þetta stuðningskerfi virkar með þeim hætti að stærri fyrirtæki, sem eru jafnvel rekin með góðum hagnaði, eiga líka rétt á að sækja um endurgreiðslu vegna rannsókna og þróunarstarfs. Það gerist þá þannig að þau fá afslátt af sköttum sem ella hefðu runnið til ríkissjóðs sem tekjuskattar. Fyrirtæki sem hv. þingmaður brennur greinilega fyrir eru með halla í sínum rekstri og fá þess vegna innspýtingu inn í reksturinn, útgreiðslu frá ríkissjóði, þrátt fyrir að vera í tapi.

Nú er málið inni í efnahags- og viðskiptanefnd og ég hef átt samskipti við formann nefndarinnar sem hefur verið að fara yfir umsagnir vegna málsins með mér og hefur vakið athygli á þeirri umsögn sem hv. þingmaður vísar sérstaklega til. Málið er að sjálfsögðu á forræði þingsins og ég hef sagt sem svo að vilji þingið gera breytingar á þessu frumvarpi þar til að við höfum fengið endanlega niðurstöðu í heildarendurskoðunina þá myndi ég einmitt frekar hallast að því að við ættum að gera breytingar á þeim þáttum málsins sem snúa að smærri fyrirtækjunum, sprotafyrirtækjunum, og síður að vera teygja okkur eftir stóru fyrirtækjunum sem eru sterkari en njóta á sama tíma góðs af þessu, vegna þess að breytingin sem snýr að þeim er minni háttar en hún skapar okkur ákveðið svigrúm til þess að bregðast við niðurstöðu endurmatsins.