stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki.
Virðulegur forseti. Ég er eins og alltaf jákvæður fyrir því að hlusta eftir ábendingum sem koma fram í þinglegri meðferð og eins og ég sagði áðan þá er þetta mál á forræði þingsins í augnablikinu og ég trúi ekki öðru en að nefndinni muni takast vel til við að vinna úr ábendingum. Mig langar bara til að segja hérna í blálokin að sá ávinningur sem hefur hlotist af stórauknum stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki í þessu tilliti, þ.e. vegna endurgreiðslna í tengslum við rannsóknir og þróun eða eflingu samkeppnissjóðanna, Tækniþróunarsjóðs, Rannsóknarsjóðs, ég gæti talað um önnur mál sem snúa að skattalega umhverfinu, allt þetta saman hefur skapað algerlega nýtt umhverfi fyrir þennan geira í landinu og niðurstaðan, árangurinn er langt fram úr mínum væntingum frá því að við lögðum af stað. Við höfum séð nýjan geira verða til, hugverkaiðnaðurinn er orðinn stór útflutningsgrein og hundruð nýrra starfa hafa orðið til. Þetta er ótrúlega spennandi vettvangur fyrir ungt fólk (Forseti hringir.) til að stíga inn á og við munum gera allt (Forseti hringir.) sem í okkar valdi stendur til að viðhalda vextinum þarna.