152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:38]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Nú er rétt vika eftir af þessu þingi og saman hefur komið undirnefnd um veitingu ríkisborgararéttar sem hefur það hlutverk að fara yfir þær umsóknir sem berast þinginu um ríkisborgararétt sem afgreiða á áður en vorþingi er lokið. Engin umsögn hefur borist frá Útlendingastofnun að þessu sinni, ekki ein einasta, fyrir undirnefndina að afgreiða áður en þingi er lokið. Fyrir mörgum vikum síðan fór allsherjar- og menntamálanefnd fram á það við Útlendingastofnun að hún afhenti gögn samkvæmt lögum um ríkisborgararétt, sem Útlendingastofnun ber að afhenda þinginu lögum samkvæmt, áður en þing kæmi saman eftir sveitarstjórnarkosningar. Þessi gögn hafa enn ekki borist. Á meðal þessara gagna er umsögn lögreglu sem tekur tvær vikur að afla. Því er alveg ljóst að það eru engar umsóknir á borði nefndarinnar fyrir þinglok. Útlendingastofnun hefur núna viðurkennt að ástæðan fyrir því að stofnunin heldur eftir þessum gögnum frá þinginu sé sú (Forseti hringir.) að þingið veiti fólki ríkisborgararétt sem stofnuninni hugnast ekki. Það er búið að staðfesta þetta. Þetta hefur ekkert með (Forseti hringir.) vinnuálag að gera, þetta hefur ekkert með jafnræði að gera, þetta hefur með það að gera að Útlendingastofnun, (Forseti hringir.) í skjóli hæstv. dómsmálaráðherra, telur sig geta stýrt vinnu Alþingis og hverjum sé veittur (Forseti hringir.) ríkisborgararéttur héðan frá Alþingi.