152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:39]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er auðvitað algjörlega óboðlegt. Þó að maður vilji helst ekki segja það hér þá freistast maður til að nota orð eins og að verið sé að hafa Alþingi að fífli. Við erum margbúin í allan vetur að reyna allt sem við getum til að afla þeirra gagna sem við sannarlega eigum rétt á að fá og hefur tíðkast að veita nefndinni svo árum og jafnvel áratugum skiptir. Þannig að fyrir þessu er rík hefð. Það er býsna sorglegur dagur sem rennur upp daginn sem þing fer í leyfi ef við náum ekki að veita þennan ríkisborgararétt. Hér hefur oft verið rætt um að herra forseti beiti sér með einhverjum hætti í málinu og ég hlýt að kalla eftir atbeina forseta Alþingis, (Forseti hringir.) sem er forseti okkar allra, og þetta er reyndar samdóma skoðun allra, held ég, (Forseti hringir.) eða flestra nefndarmanna allsherjar- og menntamálanefndar, mjög þvert á flokka.