152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:41]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er að gerast. Þetta gerðist líka um áramótin. Það var líka kvartað yfir þessu og sagt að þetta væri óásættanlegt. Það var minnst á það að klúðra þessu ekki aftur. En það er aftur búið að klúðra þessu. Ég hefði rosalega gaman af því að vita hvort formenn stjórnarflokkanna kvitta undir svona vinnubrögð, hvort ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur sé sátt við að það sé verið að breyta þessu svona, að þingið sé snuðað um þær upplýsingar sem það á að fá lögum samkvæmt. Ég er orðlaus yfir því að þetta sé að gerast. Þetta er algjörlega fáránlegt.

Forseti. Vinsamlegast hjálpaðu okkur að komast til botns í þessu máli. Hvað er eiginlega að gerast?