152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:42]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Virðulegur forseti Alþingis. Hér kemur fram ákall þingheims um að forseti grípi í taumana þegar fulltrúar framkvæmdarvaldsins koma í veg fyrir að Alþingi Íslendinga geti sinnt sínu lögbundna hlutverki. Það er alveg skýrt í lögum að Útlendingastofnun ber að afhenda Alþingi ákveðnar upplýsingar við meðferð Alþingis á umsóknum um ríkisborgararétt sem samkvæmt lögum eru afgreiddar héðan og samkvæmt venju afgreiddar héðan tvisvar sinnum á ári. Það ástand sem hér er uppi er Alþingi ekki til sóma og framkvæmdarvaldinu alls ekki til sóma. Ég skora á forseta þings að koma nú Alþingi til aðstoðar við að fá þessi gögn. Ef breyta á fyrirkomulaginu þá er það gert með lögum en ekki með geðþóttaákvörðun ákveðinna stjórnenda hjá framkvæmdarvaldinu.