152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:43]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Ég ætla að taka undir það sem fram hefur komið hér, það er orðið svolítið brýnt að koma skikki á þetta mál og tíminn er að hlaupa frá okkur. Það sem er undir í þessu máli eru einstaklingar af holdi og blóði sem gátu haft allar væntingar í heiminum um að mál yrðu afgreidd með tilteknum hætti af hálfu Alþingis. Það er stofnun framkvæmdarvaldsins sem er raunverulega og að mjög yfirveguðu ráði með atbeina hæstv. dómsmálaráðherra að koma í veg fyrir að Alþingi geti sinnt þessu lögbundna hlutverki sínu. Tvisvar á ári er talað um og það er verið að koma málum þannig fyrir að það verði ekki hægt að gera það núna, að því er virðist eins og staðan er núna. Við höfum farið fram á það margoft að forseti Alþingis beiti sér í þessu máli og ég ætla að skora á hann enn eina ferðina. Við getum ekki látið framkvæmdarvaldið valta svona yfir Alþingi. Það snýst ekki bara um virðingu þingsins. Það snýst líka um fólkið þarna úti sem gat átt lögmætar væntingar (Forseti hringir.) til þess samkvæmt venju að geta sótt um til Alþingis og fengið mögulega ríkisborgararétt.