152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:45]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd og hef komið að þessu máli og ég verð að segja alveg eins og er að sem nýliði á þingi er ég alveg steinhissa á þessari framkomu Útlendingastofnunar. Ég tel reyndar að þetta mál sé þannig vaxið að við ættum hreinlega að veita ríkisborgararétt með lögum án umsagnar Útlendingastofnunar. Við getum hæglega gert það, við erum löggjafarvaldið, það erum við sem setjum lögin. Við eigum núna í ár, þar sem við fáum ekki þessa blessuðu umsögn sem kveðið er á um í 6. gr., sem er mikilvægt undirbúningsgagn samkvæmt 6. gr. í lögum um ríkisborgararétt, við eigum að leggja fram í dag frumvarp sem ákveður að við ætlum að veita þessum aðilum ríkisborgararétt í ár. Það er ekkert sem kemur í veg fyrir að við getum gert það. Við erum löggjafarvaldið og við eigum að gera það. Þessi framkoma ráðherra Útlendingastofnunar er fyrir neðan allar hellur. Þetta er alveg kýrskýrt. Umsækjandi sækir um ríkisborgararétt til Alþingis (Forseti hringir.) og það er Alþingi sem veitir hann með umsögn frá Útlendingastofnun. Ég legg til að við gerum þetta núna með þessum hætti.