152. löggjafarþing — 85. fundur, 7. júní 2022.
um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það er algjörlega forkastanlegt að hér sé hæstv. ráðherra og stofnun sem undir hann heyrir að reyna að segja Alþingi fyrir verkum og þar með að brjóta 100 ára hefð og lög sem Alþingi hefur sett. Þetta er ekki bara lögbrot, þetta er vanvirðing við Alþingi. Ég trúi því bara ekki að virðulegur forseti muni ekki beita sér fyrir því að sú hefð sé ekki brotin og að þessi vanvirðing sé sýnd.