152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[14:47]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við ræðum tregðu Útlendingastofnunar til að fylgja lögum og liðsinna Alþingi við afgreiðslu umsókna um ríkisborgararétt. 18. maí síðastliðinn stóðum við hér í þingsal og þá vakti einmitt hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir máls á þessu. Forseti sagðist ætla að kanna málið. Forseti sagðist ætla að kanna málið hér í ræðustól. Við bentum á að það væri ekki langur tími til stefnu. Það eru liðnar þrjár vikur síðan 18. maí var. Það er mjög stutt eftir af þingi, því á að ljúka eftir tvo daga. Þannig að mig langar að spyrja: Hvernig kannaði forseti málið? Hvernig beitti forseti sér gagnvart dómsmálaráðherra til þess að það fólk sem á heimtingu á afgreiðslu frá Alþingi fyrir sumarið þurfi ekki bíða úti í kuldanum? Hvað gerði forseti? Hvernig beitti forseti sér, eins og hann sagði 18. maí að hann myndi gera?