um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Það er hægt að hafa ákveðinn skilning á gremju þingmanna út af þessu máli og sjálfum getur mér gramist staða málsins. Hitt er svo annað mál að það dylst engum hugur um að það er gríðarlega mikið álag á Útlendingastofnun og starfsmönnum þess og þrátt fyrir að við höfum fjölgað þar starfsmönnum til að glíma við það álag þá vinnast málin auðvitað með þeim hraða sem hægt er að vinna þau. Þannig er það með þessi mál eins og önnur að þau vinnast í þeirri röð sem þau berast. Hitt er svo annað að vakið hefur verið máls á því að við þurfum að breyta þessu fyrirkomulagi. Þegar það tókst að afgreiða þær umsóknir sem lágu fyrir í haust minnir mig að talan hafi verið þar einhvers staðar nálægt 170 umsóknum. Alþingi afgreiddi, ef ég man rétt, 19 ríkisborgararéttindi af þeim fjölda sem sótti um. Fullt af þessu eru umsóknir sem eru bara í sínu eðlilega ferli, það tekur sinn tíma í kerfinu og fólk fær ríkisborgararétt að lokum. Ég hef bent á það að til að flýta málsmeðferðinni þá geti nefndin valið úr þau nöfn úr umsóknunum sem hún hefur fullan aðgang að, til að skapa minni vinnu fyrir stofnunina sem er að vinna úr tugum umsókna, jafnvel á annað hundrað. (Forseti hringir.) Svo er það hárrétt sem kemur fram hjá hv. þingmanni að þingið hefur allan rétt (Forseti hringir.) til að skoða umsóknirnar sem það hefur fullan aðgang að, meta þær sjálft og veita ríkisborgararétt með lögum.