um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hæstv. ráðherra að við höfum allan rétt til að setja lög um þetta. Þó að við setjum lög um ríkisborgararétt þá erum við ekki að brjóta lögin sem eru fyrir, 6. gr., við erum bara alls ekki að gera það. Og varðandi umsagnir Útlendingastofnunar þá er það ekki stjórnsýslumeðferð í neinum skilningi, það er ekki stjórnsýslumeðferð til undirbúnings stjórnvaldsákvörðunar. Það er umsögn til undirbúnings löggjafar. Verið er að senda umsögn um lagafrumvarp sem er um veitingu ríkisborgararéttar. Útlendingastofnun virðist setja þetta allt í einn pott og hræra saman, grauta þessu saman, ríkisborgararétti sem veittur er af Útlendingastofnun og ríkisborgararétti veittum samkvæmt lögum. Ég skora á Alþingi að við veitum hann með þessum hætti núna. Ég skora jafnframt á forseta Alþingis að beina tilmælum til ráðherra og Útlendingastofnunar að þau komi með þessar blessuðu umsagnir sem vantar upp á svo við getum klárað þetta mál. Mér finnst komið fram við Alþingi af vanvirðingu af hálfu Útlendingastofnunar með því að setja bæði ríkisborgararétt samkvæmt ákvörðun þeirra og samkvæmt lögum í sama pott. (Forseti hringir.) Ég skora aftur á forseta Alþingis og ég vona að hann taki vel í þá áskorun.