um fundarstjórn.
Forseti. Hæstv. dómsmálaráðherra talaði áðan um að hann væri að leggja það til þingsins eða undirnefndarinnar að hún myndi einhvern veginn velja nöfn af þeim lista fólks sem væri að sækjast eftir ríkisborgararétti til að létta á álagi. Ég vissi bara ekki hvert ég ætlaði að fara þegar ég heyrði þessi orð. Er dómsmálaráðherra í alvörunni að leggja það til að þingið fari í einhvers konar forréttindaval um það hverjir fá afgreiðslu og ekki? Hvar erum við stödd? Ég hélt að hæstv. ráðherra væri einmitt svo annt um jafnræðið í þessu ferli. Svo kemur þessi tillaga. Hvað gerðist? Eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir var að útskýra þá stendur ekki steinn yfir steini í útlendingamálum ríkisstjórnarinnar. Við erum sífellt að reka ofan í ríkisstjórnina (Forseti hringir.) rangfærslur sem er farið með í þeim málaflokki. Hvað gengur eiginlega á hérna?