staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.
Virðulegi forseti. Ég að sjálfsögðu styð þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra Þórdísar Kolbrúnar Gylfadóttur um staðfestingu um aðild lýðveldisins Finnlands og konungsríkisins Svíþjóðar í Atlantshafsbandalagið. Þetta er auðvitað stórmál og við lifum á sögulegum tímum. Núna eru vinaþjóðir okkar, tvær af okkar nánustu samstarfsþjóðum í norrænu fjölskyldunni okkar, að ganga í stærsta varnarbandalag í heimi. Það kemur hins vegar ekki til af góðu. Það kemur til vegna þess að ástandið hefur breyst mjög hratt, sem gerist heldur ekki út af ekki neinu. Hlutirnir hafa eðlilega breyst hratt eftir að Pútín steig það skref sem allir voru að vona að hann myndi ekki stíga, að ráðast inn í Úkraínu.
Við erum mjög lánsöm að þeir sem á undan okkur gengu sáu til þess að Ísland var stofnaðili að Atlantshafsbandalaginu en að auki erum við með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Það er auðvitað miklu betra þegar við finnum ekkert fyrir ógn og þegar umræðan er lítil vegna þess að það er friðsamt í heiminum. En á stundum sem þessum þá finnum við hvað það er mikilvægt að vera með öflugar og góðar varnir.
Bara út af orðum sem hér hafa fallið er mikilvægt að það komi fram að við höfum aldrei lagt meira til bandalagsins en á undanförnum árum og sömuleiðis er alla vega mjög langt síðan það hefur verið jafn mikið sett í varnarframkvæmdir á Íslandi eins og á undanförnum árum. Ég þekki það mjög vel út af mínum fyrri störfum og það var gert í minni tíð.
Varðandi netárásir sem hér hefur líka verið minnst á þá stigum við þau skref, fyrir að ég held tveimur árum, að taka þátt í samstarfi sem við höfum ekki gert áður. Það voru mjög skynsamleg skref bæði í samstarfi við setrið í Eistlandi, Helsinki og sömuleiðis með NATO þegar kemur að slíku. Það er langur vegur frá því að íslensk stjórnvöld hafi sofið á verðinum hvað þetta varðar, þvert á móti hefur þátttakan aldrei verið meiri.
Ég vona að umræðan um öryggis- og varnarmál verði meiri hér á Íslandi því að hún kemur okkur öllum við. Það sem er alvarlegt er að sjá að það er svo margt sem bendir til þess að sagan endurtaki sig aftur. Þó svo að ég viti að margir hv. þingmenn vilji ólmir ganga í Evrópusambandið þá myndi ég ekki vera að tengja þessi mál saman, bæði eru engin efnisleg rök fyrir því en í ofanálag er það því miður þannig að Evrópuríkin og Evrópusambandið hafa ekki gert það sem þarf í aðdraganda þessa máls. Hvers er ég að vísa til þar? Ég er sérstaklega að vísa til Nord Stream 2 því að það furðulega hefur gerst að með skipulögðum hætti hafa Evrópuríkin, stærstu Evrópuríkin, og Evrópusambandið svo sannarlega ekki gert neitt til að stöðva það, það er langur vegur frá og ekkert hægt að greina neitt annað en stuðning við það, verið að vinna að því að gera sig háð Pútín og efnahagsstarfsemi hans þegar kemur að orkumálum. Sem betur fer virðast menn hafi hætt við þessa nýju gasleiðslu, nóg var nú samt. En ég verð að viðurkenna að í minni tíð sem utanríkisráðherra þá spurði ég oft þeirrar gagnrýnu spurningar hvernig mönnum dytti í hug að fara í þessa vegferð. Það var ekki mikið um svör. En aðalatriði málsins er að það er mikilvægt núna að allir, ekki bara Norðurlandaþjóðirnar heldur allar þjóðir, sem eru með sömu gildi tali einni röddu og gefi þau sömu skilaboð til þeirra aðila sem aðhyllast ekki sömu gildi og hafa sýnt fram á það með því síðast að ráðast inn í Úkraínu, þar á undan með því að ráðast inn í Krím og Georgíu, að við stöndum þétt saman og látum ekki slíka hluti líðast því að hér er um að ræða lífsafkomu okkar allra.
Ég nefni þessa gasleiðslu og hvernig Evrópa er búin að koma sér í þessa stöðu, sem er bara hræðilegt, því að á sama tíma og menn hafa sameinast um mjög harðar þvingunaraðgerðir gagnvart rússneskum stjórnvöldum þá dælast samt sem áður fjármunirnir til Rússlands og hafa eftir því sem ég best veit aldrei verið meiri út af hækkandi orkuverði vegna stríðsins. Það segir okkur líka hvað það er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga, eins og aðra, að líta á orkumálin sem þjóðaröryggismál. Núna þegar þjóðir heims eru að berjast við hátt orkuverð þá finnum við minna fyrir því en aðrar þjóðir vegna þess að við erum búin að fara í orkuskipti eitt og tvö, bæði með raforkuna og síðan með heita vatnið. En betur má ef duga skal. Það er ekki bara efnahagslega skynsamlegt, það er ekki bara skynsamlegt út af loftslagsmálum, umhverfismálum og samkeppnishæfni, heldur er það líka þjóðaröryggismál.
Ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í það en núna þegar við eigum að gefa mjög skýr skilaboð — sem ég vona að allir hv. þingmenn geri og held ég flestir ef ekki allir sem hafa hlustað hafa gert það — um að við styðjum vini okkar í Finnlandi og Svíþjóð í þessari ákvörðun þá veit ég ekki hvernig menn tengja þessi mál saman og geta komið sér á þann stað að tengja þetta við hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég held að það sé alltaf mikilvægt að ræða aðild bara til að öllum sé ljóst að það er óskynsamlegt fyrir okkur að ganga þarna inn en ef það eru einhver rök fyrir því þá er það örugglega ekki út af öryggis- og varnarhagsmunum.
Virðulegi forseti. Ég ætla að lokum að segja að ég held að það skipti mjög miklu máli í þessari umræðu að við gefum þau skilaboð sem ég veit að allir eru sammála um, að við dáumst að hetjunum í Úkraínu sem eru að berjast við ofurefli. Þó það hafi gengið vel þá eiga þau við ofurefli að etja, við skulum alveg átta okkur á því, og eru algerlega háð því að vestræn ríki styðji þau með eins miklum hætti og mögulegt er. Við skulum líka hafa það í huga að þessar hetjur, úkraínska þjóðin, eru ekki bara að berjast fyrir sínu lífi og sínu landi. Þær eru líka að berjast fyrir okkur. Allar þjóðir, sérstaklega þær sem eru í nágrenninu, segja eðlilega að þær hafi miklar áhyggjur af því ef Úkraína fellur þá séu þau næst. Ég held að það sé óhætt að segja um þann sem dettur í hug að ganga fram með þeim hætti sem Pútín hefur gert að hann sé til alls vís. Maður vildi hafa heiminn allt öðruvísi en hann er en heimurinn er eins og hann er. Við sem erum svo lánsöm, minni hluti jarðarbúa, að búa við lýðræði, mannréttindi og þau gildi sem okkur finnst sjálfsögð verðum að hafa varann á. Við verðum að vera í öflugu varnarbandalagi og við Íslendingar verðum auðvitað að vera með þessar styrku varnir í gegnum varnarsamninginn við Bandaríkin. Við verðum að styðja það fólk sem er að berjast fyrir lífi sínu og frelsi. Ég lít svo á að ef við samþykkjum þessa tillögu frá hæstv. utanríkisráðherra séum við í leiðinni að gefa skýr skilaboð í þá veruna.