152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.

715. mál
[16:13]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Frú forseti. Mig langaði í lok þessarar umræðu einfaldlega að þakka hv. utanríkismálanefnd fyrir sína vinnu. Hún hefur unnið þessa vinnu vel og ég þakka fyrir þá skilvirkni og svigrúm sem þingið hefur sýnt. Þetta er í mínum huga mjög stór dagur, að afgreiða málið hér vonandi með mjög jákvæðum hætti eftir augnablik, þar sem við erum að sýna í verki, ekki bara í orði heldur á borði, samhug og stuðning við okkar helstu vina- og bandalagsríki sem hafa tekið sína ákvörðun fyrir sitt leyti um að vilja vera aðilar að öflugasta öryggis- og varnarbandalagi í heimi. Það er góður bragur á því að vera á meðal allra fyrstu til að gera það og afgreiða málið hér á sama degi og Danmörk gerir slíkt hið sama. Það er vonandi að málið leysist farsællega og að Finnland og Svíþjóð verði sem allra fyrst aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Þótt það mál sé eins og sakir standa á mjög viðkvæmu stigi þá getur maður ekki annað en vonast til og nánast gert kröfu um að það leysist á farsælan hátt enda mikið undir. Aðdragandinn hjá Finnum og Svíum við að komast að þessari niðurstöðu var að mínu mati með miklum sóma. Það er kannski ekki það sem Rússlandsforseti sá fyrir að Atlantshafsbandalagið myndi stækka og eflast og þar myndu ganga til liðs við bandalagið mjög framúrskarandi ríki þegar kemur að því að halda á lofti og lifa eftir þeim gildum sem virðast ógna Rússlandsforseta hvað helst. Það eru í mínum huga líka mjög jákvæð skilaboð.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka nefndinni fyrir vel unnin störf og ég get ekki annað sagt en að ég hlakka til að greiða atkvæði hér rétt á eftir.