152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

um fundarstjórn.

[16:17]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Hér fyrr í dag benti hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir á þá stöðu sem enn og aftur er komin upp í allsherjar- og menntamálanefnd, að Útlendingastofnun neitar að afhenda Alþingi gögn sem þarf til að afgreiða umsóknir um ríkisborgararétt. Hún spurði forseta hvað Alþingi geti gert þegar stjórnsýsla dómsmálaráðuneytis neitar að fylgja lögum. Ég spurði forseta 18. maí, eftir að forseti hafði sagst ætla að kanna málið: Hvernig kannaði forseti málið? Hvernig beitti forseti sér gagnvart ráðuneytinu? Hvað gerði forseti yfir höfuð til að Útlendingastofnun hætti að standa í vegi fyrir því að þetta fólk fengi að verða Íslendingar eins og það á heimtingu á lögum samkvæmt? Við fengum engin svör, frú forseti, og þess vegna langar mig að ítreka þessa beiðni: Hvað gerði forseti? Hvað mun forseti gera og hvað hefur forseti gert til að bæta úr þessu?