152. löggjafarþing — 85. fundur,  7. júní 2022.

staðfesting viðbótarsamninga við Norður-Atlantshafssamninginn um aðild Finnlands og Svíþjóðar.

715. mál
[16:26]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um þá sjálfstæðu ákvörðun Svía og Finna, sem þeir tóku á grunni síns fullveldis, að ganga í friðar- og varnarbandalagið NATO. Viðreisn styður umsókn þessara vinaríkja okkar eindregið. Um leið vil ég hvetja hæstv. ráðherra utanríkismála, og líka forsætisráðherra, til að gera allt sem í hennar valdi stendur til að styðja eins og hægt er við bakið á Moldóvu og Georgíu í viðleitni þeirra til að verða líka aðilar að NATO. Ég vil líka taka undir þau orð sem hér hafa fallið um Erdogan og Tyrkland, af hálfu utanríkisráðherra og annarra sem hér hafa talað um Tyrkland. Það skiptir máli að sýna festu gagnvart þeim fráleitu kröfum sem Erdogan Tyrklandsforseti hefur sett fram í tengslum við aðildarumsókn Svía og Finna. Viðreisn styður þessa tillögu eindregið og við sjáum að þetta er svar (Forseti hringir.) Svía og Finna í því að verja sitt fullveldi. Þeir telja hag sínum betur borgið í samvinnu og samstarfi við aðra eins og innan NATO og ESB.