152. löggjafarþing — 86. fundur,  8. júní 2022.

varamenn taka þingsæti.

[17:01]
Horfa

Forseti (Líneik Anna Sævarsdóttir):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Flokks fólksins um að Inga Sæland, 7. þm. Reykv. s., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því tekur Svanberg Hreinsson sæti á Alþingi en hann er 3. varamaður á lista flokksins í kjördæminu og víkur þá 2. varamaður á lista, Helga Þórðardóttir, af þingi en 1. og 2. varamaður hafa boðað forföll.

Einnig hefur borist bréf frá Oddnýju G. Harðardóttur, 8. þm. Suðurk., um að hún verði fjarverandi á næstunni. Því tekur 2. varamaður á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu, Guðný Birna Guðmundsdóttir, sæti á Alþingi en 1. varamaður hefur boðað forföll.