152. löggjafarþing — 86. fundur,  8. júní 2022.

staðfesting kosningar.

[17:02]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur fengið til meðferðar tilkynningu landskjörstjórnar um kosningu Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur sem 2. varaþingmanns Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og Svanbergs Hreinssonar sem 3. varaþingmanns Flokks fólksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Nefndin hefur fundað til að fjalla um kosningu þeirra og kjörgengi og mælir einróma með staðfestingu kosningar Guðnýjar Birnu Guðmundsdóttur og Svanbergs Hreinssonar.